Skyrsölu í Bretlandi frestað eftir hrunið 13. febrúar 2009 05:30 Íslenskt skyr í bandarískri búðarhillu Hið séríslenska skyr á að ná fótfestu beggja vegna Atlantsála og styrkja þannig grundvöll íslensks mjólkuriðnaðar.
Stórhuga áformum um sölu íslensks skyrs í Bretlandi var slegið á frest um óákveðinn tíma eftir hrun bankakerfisins í október. „Við viljum fara varlega í löndum eins og Bretlandi af því að ég tel að ímynd Íslands og þar af leiðandi íslenskra vara hafi skaðast. En ég er líka þeirrar skoðunar að það fenni fljótt yfir mál af þessu tagi og að við ættum að geta komið inn með íslenska skyrið á þessa markaði seinni partinn á þessu ári,“ segir Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Nýlands ehf., sem annast sölu erlendis fyrir Mjólkursamsöluna. Að sögn Guðbrands er talsverður undirbúningur þegar að baki vegna fyrirhugaðrar sölu á skyri í Bretlandi. Ætlunin sé að nýta 380 tonna tollfrjálsan kvóta fyrir sölu á skyri sem samið hafi verið um við Evrópusambandið árið 2007. „Við unnum mikið í því í fyrrasumar og fyrrahaust að undirbúa að setja þetta á breska markaðinn. Það var unnið mikið starf við að tengja skyrið við íslenska upprunann og við settum fram slagorð sem tengdu skyrið vel við Ísland. En þá varð bankahrunið og Icesave-málið og við settum þessi áform til hliðar í ljósi aðstæðna,“ útskýrir Guðbrandur. Guðbrandur, sem áður var forstjóri Mjólkursamsölunnar, er annar tveggja eigenda Nýlands sem frá miðju síðasta ári hefur haft tveggja ára samning um að annast útflutning fyrir Mjólkursamsöluna. Skyr hefur verið flutt út til Bandaríkjanna frá árinu 2005. Útflutningurinn þangað nam um 153 tonnum í fyrra og fyrir það fengust um 75 milljónir króna samkvæmt tölum Hagstofunnar. Magnið var svipað árið 2007. „Við erum að vonast til að sjá aukningu inn á bandaríska markaðinn á þessu ári og vonumst til að geta sýnt líka töluverða aukningu inn á markaðinn í Evrópu þannig að við förum að nýta þennan kvóta sem við eigum fyrir skyr inn á þessi markaðssvæði,“ segir Guðbrandur sem telur íslenskan mjólkuriðnað eiga góð sóknarfæri í útflutningi. Hann bendir á að þegar sé flutt út umtalsvert magn af undanrennudufti og smjöri. „Ég er alveg sannfærður um það, ef við höldum rétt á málum og náum að styðja við markaðssetninguna í sérvöru eins og skyrinu, að hægt sé að byggja upp nokkuð góða markaði til lengra tíma litið.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Fleiri fréttir Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Sjá meira