Engar upplýsingar um sparnað vegna opins hugbúnaðar 2. nóvember 2009 05:15 Kostir og gallar opins hugbúnaðar ræddir í þaula. Þar kom fram að mikil fjárútlát megi spara með innleiðingu á nýjum stýrikerfum og ókeypis hugbúnaði.Fréttablaðið/gva
Ríkið hefur ekki heildarupplýsingar um kostnað stofnana hins opinbera vegna leigu á leyfum á séreignahugbúnaði. Ekki liggja því fyrir upplýsingar um hugsanlegan sparnað ríkisins af innleiðingu opins hugbúnaðar. Þetta kom fram í máli Höllu Bjargar Baldursdóttur, verkefnastjóra í rafrænni stjórnsýslu hjá forsætisráðuneytinu, á hádegisfundi Skýrslutæknifélags Íslands í vikunni. Nokkrar stofnanir hafa aukið vægi og notkun opins hugbúnaðar en menntamálaráðuneytið hvatti til þess í ágúst að menntastofnanir tækju upp notkun á opnum og frjálsum hugbúnaði í meira mæli en áður. Dæmi eru um að framhaldsskóli greiði erlendum hugbúnaðarfyrirtækjum 1,5 milljónir króna í leyfisgjöld á ári fyrir notkun á séreignahugbúnaði. Á fundinum benti Sigurður Ólafsson, skipulagsstjóri Þjóðleikhússins, á að við breytingu á tölvukerfi leikhússins í vor hafi verið leitað tilboða bæði frá fyrirtækjum sem bjóða séreignahugbúnað, svo sem frá Microsoft, og frjálsum búnaði. Niðurstaðan hafi verið opna hugbúnaðinum í vil og var í kjölfarið Ubuntu-stýrikerfið innleitt hjá Þjóðleikhúsinu. Stýrikerfið er ókeypis og fylgir með því skrifstofuvöndull og póstforrit ásamt öðru sem ekki þarf að greiða fyrir. Þrátt fyrir þjónustusamning við innlenda kerfisþjónustu er kostnaðurinn 75 prósentum lægri fyrsta árið en ef hin leiðin hefði verið farin. Fram kom í máli Halldórs Jörgenssonar, framkvæmdastjóra Microsoft á Íslandi, að sparnaður vegna innleiðingar á opnum og ókeypis hugbúnaði kunni að vera ofmetinn. Þótt kostnaðurinn kunni að vera lágur í upphafi verði hann sambærilegur að þremur árum liðnum og ef séreignahugbúnaður væri keyptur.jonab@frettabladid.is
Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Fleiri fréttir Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Sjá meira