Þykir sölumennska Securitas óábyrg 14. september 2009 03:30 Starfsmaður Neytendasamtakanna segir að mikið hafi heyrst um óprúttna aðila sem hringi í fólk og þykist vera að selja öryggisgæslu. „
Okkur finnst þetta óábyrg sölumennska og einkennilegt að fyrirtæki sem vill tengja sig við öryggi kjósi að kynna þjónustu sína á þennan hátt,“ segir Brynhildur Pétursdóttir, starfsmaður Neytendasamtakanna. Samtökunum hefur borist kvörtun vegna símasölu öryggisvörslufyrirtækisins Securitas. Á heimasíðu Neytendasamtakanna kemur fram að hringt hafi verið í félagsmann samtakanna að kvöldi til og honum boðin öryggisráðgjöf. Þótti manninum varhugavert að útlista í síma hvort og með hvaða hætti hann tryggði öryggi heimilisins. Brynhildur segir viðkomandi félagsmann hafa brugðist hárrétt við hringingunni. „Hann gaf ekki upp neinar upplýsingar, heldur skellti á og kannaði svo hvaðan hringingin kom. Undanfarið hefur heyrst mikið af því að óprúttnir aðilar séu að hringja í fólk og þykjast vera að selja öryggisgæslu. Það er mjög einföld aðferð til að komast að því hvernig slíkum málum er háttað á heimilum,“ segir Brynhildur. Trausti Harðarson, forstjóri Securitas, segir að fyrirtækinu hafi ekki borist formlegt erindi frá Neytendasamtökunum vegna málsins. „Ég tel ekki óeðlilegt að við kynnum okkar vöru á sambærilegan hátt og aðrir. Svona hefur þetta verið gert í mörg ár og afar sjaldan komið upp óánægja. Það er ekki hringt úr leyninúmerum, þannig að lítið mál er að staðfesta hvaðan símtalið kemur,“ segir Trausti Harðarson.- kg
Mest lesið Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Fleiri fréttir Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Sjá meira