Háskólanemar sviku út 300 milljóna bætur 14. september 2009 06:30
345 háskólastúdentar í lánshæfu námi voru skráðir atvinnulausir á síðasta skólaári og þáðu atvinnuleysisbætur sem þeir áttu ekki rétt á. Þetta kom í ljós þegar nemendaskrár háskólanna voru keyrðar saman við upplýsingar um þá sem þegið hafa atvinnuleysisbætur. Talið er að nemendurnir hafi þegið samtals um það bil 300 milljónir króna úr Atvinnuleysistryggingarsjóði á síðasta ári. Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra, segir að ekki liggi fyrir nákvæmar tölur, en 300 milljónir eru taldar nærri lagi. Verið er að vinna úr upplýsingum um stöðu háskólastúdentanna gagnvart Atvinnuleysistryggingarsjóði. Sumir úr hópnum fengu tekjutengdar bætur, sem atvinnulausir fá fyrstu mánuðina eftir atvinnumissi. Aðrir fengu almennar atvinnuleysisbætur, sem eru 149.000 krónur á mánuði. Í þriðja hópnum eru þeir sem skráðu sig sem atvinnulausa námsmenn í fyrrasumar en héldu áfram að skrá sig atvinnulausa eftir að þeir fóru aftur í nám í fyrrahaust. Þeir fengu atvinnuleysisbætur, sem eru að meðaltali 110.000 krónur á mánuði fyrir þennan hóp námsmanna sem hafa ekki öðlast full réttindi á vinnumarkaði. Grunnframfærsla námslána samkvæmt reglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna var hins vegar 100.600 krónur á mánuði. Nemendaskrár og skrár Atvinnuleysistryggingarsjóðs eru nú að fullu samkeyrðar og á það að koma í veg fyrir að svona mál endurtaki sig. Nokkrir dagar eru síðan félagsmálaráðherra og menntamálaráðherra kynntu breytingar sem fela í sér að réttur námsmanna til atvinnuleysisbóta á sumrin er afnuminn. Samhliða voru frítekjumörk þeirra sem fara í lánshæft nám eftir atvinnumissi hækkuð, til þess að auðvelda fólki að hefja lánshæft nám frekar en að skrá sig atvinnulaust.- pg
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira