Enski boltinn

Dunne skoraði gegn gömlu félögunum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Richard Dunne eftir markið sitt í kvöld.
Richard Dunne eftir markið sitt í kvöld. Nordic Photos / Getty Images

Aston Villa og Manchester City gerðu í kvöld 1-1 jafntefli í lokaleik 8. umferðar í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Richard Dunne kom Aston Villa yfir á 15. mínútu leiksins en hann gekk í raðir Aston Villa frá City í sumar. Hann var fyrirliði City áður en hann fór frá félaginu og fagnaði ekki marki sínu í kvöld.

Þannig var staðan í hálfleik en Craig Bellamy jafnaði metin fyrir City á 67. mínútu leiksins.

Þetta var einnig fyrsti leikur Gareth Barry á Villa Park síðan hann fór frá félaginu til City nú í sumar.

Dunne skoraði með skalla eftir hornspyrnu og var ekki langt frá því að bæta öðru marki við skömmu áður en City jafnaði metin.

Bellamy skoraði sitt mark eftir fyrirgjöf Emmanuel Adebayor en City virtist líklegra til að ná öllum þremur stigunum í lok leiksins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×