Sport

Advocaat ráðinn landsliðsþjálfari Belgíu

Ómar Þorgeirsson skrifar
Dick Advocaat.
Dick Advocaat. Mynd/NordicphotosGetty

Hollenski þjálfarinn Dick Advocaat hefur ákveðið að láta af störfum sem knattspyrnustjóri Zenit frá St. Pétursborg og taka við landsliðsþjálfarastöðunni hjá Belgíu.

Hinn 61 árs gamli Advocaat skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við knattspyrnusamband Belgíu en hann á að baki langan feril sem þjálfari hjá félögum á borð við PSV og Rangers auk þess sem hann var áður landsliðsþjálfari hjá Hollandi, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Suður-Kóreu. 

Advocaat er ætlað að blása nýju lífi í vonir Belgíu um að komast á lokakeppni HM 2010 en liðið situr sem stendur í fjórða sæti í undanriðli fimm þegar fjórir leikir eru eftir, ellefu stigum á eftir toppliði Spánar og fimm stigum á eftir Bosníu-Herzegovinu sem er í öðru sæti.

Ljóst þykir að ákvörðun Advocaat að taka við landsliði Belgíu mun valda stórhuga félögum í þjálfaraleit víðs vegar um Evrópu miklum vonbrigðum, enda nokkur stórlið sögð vilja fá þennan gamla ref í sínar raðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×