Jónas Guðni: Mætum vel undirbúnir til leiks Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. júlí 2009 15:15 Jónas Guðni Sævarsson í leik með KR. Mynd/Daníel
Jónas Guðni Sævarsson, leikmaður KR, segir að sínir menn hafi undirbúið sig vel fyrir leik liðsins gegn Stjörnunni í kvöld. KR er í þriðja sæti deildarinnar með 20 stig en Stjarnan í því fjórða með nítján en á leik til góða á hin toppliðin. FH er þó langefst með 27 stig og því leikurinn í kvöld mikilvægur upp á framhaldið að gera. „Við áttum ágætisleik gegn Blikum fyrr í vikunni og við ætlum vonandi að halda uppi sömu stemningu og var í seinni hálfleik þar og náum að keyra á Stjörnuliðið af miklum krafti," sagði Jónas Guðni í samtali við Vísi. „Við höfum undirbúið okkur vel fyrir leikinn og ræddum það í gær hvernig við munum leggja leikinn upp. Logi (Ólafsson, þjálfari KR) hefur skoðað Stjörnuliðið vel og við þurfum að koma í veg fyrir að þeir nýti sér þann mikla hraða sem þeir búa yfir. Þeir hafa verið að refsa öðrum liðum með því að sækja hratt á andstæðinginn enda með gríðarlega snögga leikmenn. En við verðum vonandi tilbúnir fyrir þann slag." Hann segir þó þetta ekki vera úrslitaleik um hvort liðið nái að fylgja FH-ingum eftir í toppslagnum. „Það er enn það mikið eftir af mótinu að það sé ekki hægt að tala um þetta sem úrslitaleik. En auðvitað er hann afar mikilvægur upp á framhaldið að gera." Jónas Guðni hefur að undanförnu verið orðaður við Halmstad í Svíþjóð og mun þjálfari liðsins vera á leiknum í kvöld til að fylgjast með honum. „Þetta á að vera lokaúttekt þeirra á mér og finnst mér reyndar þetta hafa tekið gríðarlega langan tíma allt saman. En þeir eru greinilega að vanda valið og við sjáum til hvað gerist eftir þennan leik." „En ég er lítið að stressa mig á þessu máli. Það er það mikið að gerast heima og ég hef alltaf sagt að það þyrfti mikið til að ég myndi flýja land á miðju tímabili. Ég myndi því ekki svekkja mig á þessu ef ég fæ ekki samning."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Tveir látnir og sjö særðir eftir að maður ók niður hjólreiðalið Sport Fleiri fréttir Gri/Nja - Fram | Gætu endað hlið við hlið í kvöld Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm Sjá meira