Mjölgeymar HB Granda teknir niður 8. júlí 2009 14:43 Fjórir geymanna voru hífðir á flutningspramma í gærkvöldi. Mynd/Ólafur Hauksson
Byrjað er að taka niður stóru mjölgeymana við fiskiðjuver HB Granda, sem sett hafa svip á Reykjavíkurhöfn um áratuga skeið. Þeir verða fluttir sjóleiðina til Vopnafjarðar og reistir þar. Tankarnir eru tíu og standa nú í tveimur röðum. Hver tankur var til skamms tíma 18 metra hár, en að undanförnu hafa þeir allir verið hækkaðir um fjóra metra til að koma þar fyrir svonefndum sprengilúgum, sem krafist er í nýrri reglugerð. Tankarnir, sem hver um sig vegur 33 tonn, hafa og verða hífðir niður í stóran flutningapramma, sem dráttarbátur kom með frá Noregi, og mun báturinn svo draga prammann til Vopnafjarðar , með tankana uppi standandi en hæðin á þeim er álíka og á átta hæða íbúðablokk. Á Vopnafriði er búið að steypa undirstöður undir þá á hafnarsvæðinu, í grennd við fiskimjölsverksmiðju HB Granda á staðnum, en ekkert hefur verið brætt í verksmiðjunni á Granda í nokkur ár. Hún verður nú rifin,en ýmis búnaður úr henni fluttur til Vopnafjarðar. Þegar til kemur, verða tankarnir langhæstu mannvirki á Vopnafirði og mundu sjálfsagt breyta ásýnd þessa rúmlega 500 manna staðar umtalsvert.
Mest lesið Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Innlent „Þetta var rétt ákvörðun“ Innlent Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Innlent Dagný Ósk látin Innlent Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Björn Leví telur einsýnt að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi Innlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Sautján voru handteknir í aðgerðum lögreglu Innlent Fleiri fréttir „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Pawel leggur frumvarp Gríms um netsölu áfengis fram á ný Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Nafnið villandi og ekki lýsandi fyrir heilkennið Annað innbrotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ Sautján voru handteknir í aðgerðum lögreglu Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Rokið, haustlitir og lauf út um allar trissur Fjöldi sjálfsvíga svipaður og fyrri ár Björn Leví telur einsýnt að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi Tilkynningar um heimilisofbeldi milli foreldra og barna tvöfaldast 350 milljóna tekjur Þingvalla í húfi vegna náttúrupassa Dapurlegt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálfsögðum rétti Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Bókun 35 og óveður setur strik í reikninginn Pallborðið í heild sinni: Klukkan tifar og staðan viðkvæm Rúta með skólabörn um borð fór út af veginum Þakplötur og trampólín á flugi Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Borgarverk með lægsta boð í Þjórsárbrú og Búðafossveg Sjá meira