Frank Lampard: Erfiðast að spila á móti Steven Gerrard Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. október 2009 13:30 Frank Lampard í baráttu á móti Steven Gerrard. Mynd/AFP
Frank Lampard, miðjumaður Chelsea, viðurkennir að verkefni dagsins sé það erfiðasta í boltanum. Hann mætir þá félaga sínum í enska landsliðinu, Steven Gerrard, þegar lið þeirra Chelsea og Liverpool mætast í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn fer fram á Brúnni og hefst klukkan 15.00. „Það er erfiðast að spila á móti Steven Gerrard af því hann hefur allt. Hann er hinn fullkomni miðjumaður og sá besti á Englandi. Kannski er samt mjög erfitt að spila á móti miðjumönnum Arsenal þegar liðið er í stuði en það breytir ekki því að Gerrard er sá erfiðasti fyrir mig," sagði Frank Lampard. Lampard segir samkeppnina milli þeirra vera í góðu en þeir spila síðan hlið við hlið með enska landsliðinu. „Þetta er góð samkeppni því okkur kemur vel saman og njótum þess að spila saman með Englandi. Margir reyna að benda á að það að við séum of líkir en það hefur gengið betur hjá okkur síðasta árið," sagði Lampard sem var ekki hættur að hrósa Gerrard. „Stevie er einn besti leikmaðurinn í Englandi og líklega í hópi þeirra bestu í heimi. Það alltaf gaman að spila með slíkum leikmönnum og það er einnig gaman að mæta þeim," sagði Lampard og hann býst við alvöru leik á Brúnni í dag. „Ég myndi segja að Barcelona sé erfiðasti mótherji okkar í Evrópu en á Englandi er það Liveprpool-liðið. Þeir eru kannski ekki besta liðið því Manchester United er búið að sanna að þeir eru bestir en það er samt mjög erfitt að spila á móti Liverpool. Þeir gera þér erfitt fyrir að spila þinn bolta og þeir hafa mjög marga menn sem eru að setja á þig pressu," sagði Lampard.
Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Enski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Fótbolti Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Fótbolti Fleiri fréttir Sunderland - Arsenal | Englandsmeistararnir halda til Sunderland Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjá meira