Innlent

Ekki sameiginlegt mat á Suðvesturlínu

Álver í Helguvík mun nýta nýja Suðvesturlínu. Skipulagsstofnun hefur nú úrskurðað að ekki þurfi sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum línunnar. Kærufrestur er þó ekki runninn út.fréttablaðið/gva
Álver í Helguvík mun nýta nýja Suðvesturlínu. Skipulagsstofnun hefur nú úrskurðað að ekki þurfi sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum línunnar. Kærufrestur er þó ekki runninn út.fréttablaðið/gva

Skipulagsstofnun hefur, í annað sinn, úrskurðað að ekki þurfi að fara fram sameiginlegt mat umhverfisáhrifa Suðvesturlínu. Stofnunin hafði úrskurðað þess efnis í mars, en Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra felldi þann úrskurð úr gildi og bað um nýjan, sem nú er fallinn á sama veg. Hægt er að kæra ákvörðunina til umhverfisráðherra til 4. desember.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra vísar í þann frest og segir málið í eðlilegum farvegi. „Skipulagsstofnun hefur leitað eftir ítarlegri upplýsingum eins og fyrir var lagt og byggt sinn úrskurð á þeim gögnum. Nú taka við eðlilegir ferlar og frestir.“

Samkvæmt úrskurðinum uppfyllir framkvæmdin ekki þau skilyrði sem lög gera ráð fyrir að þurfi til sameiginlegs mats. Stofnunin vísar sérstaklega í úrskurð fyrrum umhverfisráðherra, Þórunnar Sveinbjarnardóttur, vegna álversins í Helguvík, en hann féll 3. apríl 2008. Þar kemur fram sú túlkun að ákvörðun um sameiginlegt mat skuli liggja fyrir áður en tekin er ákvörðun um matsáætlun. Svo var ekki í þessu tilviki.

Þá kemur fram í úrskurðinum að vafi leiki á hvað sé átt við í lögum um „fyrirhugaðar framkvæmdir“. Skipulagsstofnun metur svo að um fastmótaða framkvæmd þurfi að vera að ræða, sem komin sé á það stig að geta hlotið málsmeðferð. Framkvæmdir á hugmyndastigi hafi ekki áhrif. Samkvæmt þessum skilningi metur stofnunin eftirfarandi framkvæmdir á sama svæði og línan, eða háð framkvæmdinni: álver í Helguvík, Bitruvirkjun, Hverahlíðarvirkjun, kísilmálmverksmiðju í Helguvík, stækkun Reykjanesvirkjunar og jarðhitanýtingu við Gráuhnjúka.

Ágúst Hafberg hjá Norðuráli, sem reisa mun álverið í Helguvík, fagnar úrskurðinum og segir hann í samræmi við væntingar. Hann segir ákvörðun umhverfisráðherra um að fella fyrri ákvörðun stofnunarinnar úr gildi hafa tafið málið. Ekki hafi verið hægt að ganga frá ákveðnum samningum eða aflétta fyrirvörum á ýmsum framkvæmdum.

Ágúst segir fjármögnun verkefnisins ganga vel, unnið sé að henni í samráði við þrjá banka; tvo franska og einn hollenskan.

kolbeinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×