Borgarbúar finna fyrir öryggi að næturlagi 19. nóvember 2009 11:24
Mikill meirihluti íbúa, eða tæplega 90 prósent, sagðist mjög eða frekar öruggur einn á gangi að næturlagi í sínu hverfi. Um 63 prósent þátttakenda sagðist hins vegar mjög eða frekar óöruggur einn á gangi í miðborg Reykjavíkur. Þetta kemur fram í skýrslunni Afbrot á höfuðborgarsvæðinu 2008 - Dreifing tilkynntra brota eftir svæðum og reynsla íbúa af lögreglu, öryggi og afbrotum. Í þessari skýrslu er fjallað um tíðni afbrota á höfuðborgarsvæðinu á árunum 2005 til 2008 og einnig um niðurstöður könnunar á viðhorfi íbúa höfuðborgarinnar til lögreglu, reynslu af afbrotum og öryggistilfinningu þeirra. Þetta er í þriðja sinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gefur út tölfræðiskýrslu í þessari mynd, en markmiðið með henni er meðal annars að halda árlega skrá yfir afbrot á höfuðborgarsvæðinu, mæla þróun í afbrotatíðni milli ára, gera samanburð eftir svæðum og tengja umfjöllunina við lýðfræðilegar upplýsingar og niðurstöður könnunar um upplifun íbúa af afbrotum. Meðal annars kemur fram í skýrslunni að hegningarlagabrotum fjölgaði um 14 prósent árið 2008 sé litið til meðaltals áranna 2005-2007. Fjölgun brota árið 2008 markast mjög af fjölgun þjófnaðarbrota og þá ekki síst innbrota. Hins vegar fækkaði ofbeldisbrotum og eignaspjöllum. Árið 2008 áttu mun fleiri brot sér stað í Miðborg Reykjavíkur en á öðrum svæðum höfuðborgarsvæðisins, eða hátt í 2000 hegningarlagabrot. Þó eiga flest þessara brota sér stað á afmörkuðu svæði innan hverfisins og á afmörkuðum tíma, þegar skemmtanalíf borgarbúa fer þar fram að næturlagi um helgar. Niðurstöður spurningakönnunarinnar sýna meðal annars að 91 prósent íbúa höfuðborgarsvæðisins telja lögreglu skila góðu starfi í sínu hverfi við að stemma stigu við afbrotum og jókst ánægjan frá síðustu könnun. Þá töldu tæplega 74 prósent lögregluna aðgengilega í sínu hverfi. Þegar spurt var hvaða afbrot fólk áleit vera mesta vandamálið í sínu hverfi nefndu flestir innbrot eða mun fleiri en í síðustu könnun. Færri nefndu hins vegar umferðarlagabrot sem mesta vandamálið árið 2008 samanborið við fyrri ár.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Innlent Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Sjá meira