Innlent

Fólk varað við vatnavöxtum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Frá Steinholtsá árið 2007. Mynd/ Lögreglan.
Frá Steinholtsá árið 2007. Mynd/ Lögreglan.
Lögreglan á Hvolsvelli varar vegfarendur sem ætla að leggja á hálendisleiðir nú í dag og um helgina við færð á svæðinu. Hvetur lögreglan fólk til að kanna með færð á þessum leiðum áður en lagt er af stað í ferðir. Gríðarleg úrkoma er á svæðinu og hafa vötn og ár margfaldað rennsli sitt og eru því orðin hættuleg yfirferðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×