Enski boltinn

Sörensen framlengir við Stoke

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Thomas Sörensen.
Thomas Sörensen.

Danski landsliðsmarkvörðurinn Thomas Sörensen mun á næstu dögum framlengja samning sinn við Stoke City.

Sörensen hefur verið afar stöðugur á milli stanganna hjá félaginu síðan hann gekk í raðir þess árið 2008 er Stoke komst í úrvalsdeildina.

Sörensen, 33 ára, er afar ánægður í herbúðum félagsins og lýsti yfir vilja til þess að vera þar áfram. Menn þar á bæ voru ánægðir með það og ætla að gera við hann nýjan samning.

Sörensen segir að allt sé klárt og aðeins eigi eftir að skrifa undir nýja samninginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×