Enski boltinn

Enn vinnur Burnley á heimavelli

Ómar Þorgeirsson skrifar
Wade Ellito skoraði mark Burnley í dag.
Wade Ellito skoraði mark Burnley í dag. Nordic photos/AFP

Nýliðar Burnley halda áfram að koma á óvart en í dag unnu þeir góðan 1-0 sigur gegn Everton á Turf Moor-leikvanginum.

Wade Elliot skoraði eina mark leiksins á 34. mínútu en Louis Saha fékk kjörið tækifæri til þess að jafna leikinn þegar Everton fékk vítaspyrnu þegar tæpur stundarfjórðungur lifði leiks en skot hans fór framhjá markinu.

Jóhannes Karl Guðjónsson sat á varamannbekknum hjá Burnley og kom ekkert við sögu í leiknum.

Joleon Lescott var ekki í leikmannahópi Everton og talið næsta víst að hann muni formlega ganga í raðir Manchester City í dag eða á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×