Willum: Verð að hrósa mínu liði Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 1. júní 2009 22:12 Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, var sáttur með sína menn.
Willum Þór Þórsson var kátur eftir 2-1 sigur sinna manna gegn Þrótti fyrr í kvöld. „Maður er aldrei rólegur," sagði Willum aðspurður hvort hann hafi verið farinn að óttast að jafntefli yrði niðurstaðan „Ég horfði á Þróttaraliðið ekki alls fyrir löngu spila mjög skipulagðan og agaðan varnarleik gegn KR, gerðu það mjög vel. Ég ber mikla virðingu fyrir Þrótturunum þeir komu hér og pressuðu okkur framarlega. Opnuðu leikinn og komu okkur á óvart. Við náum okkur síðan vel á strik í seinni hálfleik og fannst við hafa átt að gera betur í sóknarfærunum okkar í fyrri hálfleik. Svo gekk mikið á, þetta fór teiga á milli. Víti, síðan Helgi í gegn og þeir manni færri, þá verða þeir ennþá erfiðari, pakka og þétta," sagði Willum. Willun var að vonum sáttur við sína menn. „Ég verð að hrósa mínu liði fyrir að sýna þolinmæði og ná þessum tveimur mörkum. Það er ekkert auðvelt í þessari deild að lenda undir. Við erum búnir að gera í þremur síðustu leikjum. Koma til baka og ná sjö af níu stigum.Það eru náttúrulega bara alvöru fótboltalið sem gera svoleiðis." Helgi Sigurðsson kom inná fyrir Guðmund Stein Hafsteinsson eftir einungis rúmar 26 mínútur og stóð sig frábærlega. „Helgi kom hungraður inn," sagði Willum. „Hann er bara búinn að vera í brasi með bakið á sér, verið stífur og við þurfum aðeins að lappa upp á kallinn. Gott að fá hann inn. Í lokin barðist hann manna mest við að halda þessu." Willum var spilandi þjálfari Þróttar undir lok síðustu aldar. Aðspurður hvort enginn tregi hefði verið í honum að skella gömlu félögunum svaraði hann hlæjandi: „Nei nei, við þurfum á þessum stigum að halda. Þetta er bardagadeild."
Tengdar fréttir Umfjöllun: Valur sigraði lánlausa Þróttara Valsmenn tóku móti Þrótti á Vodafone-vellinum í kvöld. Fyrir leikinn voru Valsmenn í sjöunda sæti með sjö stig en Þróttarar á botninum með einungis tvö stig. 1. júní 2009 18:15 Gunnar Odds: Þurfum að smíða hafsenta Gunnar Oddsson, þjálfari Þróttar var yfirvegaður, sem endra nær, eftir tap sinna manna gegn Val fyrr í kvöld. 1. júní 2009 22:26 Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings Sjá meira
Umfjöllun: Valur sigraði lánlausa Þróttara Valsmenn tóku móti Þrótti á Vodafone-vellinum í kvöld. Fyrir leikinn voru Valsmenn í sjöunda sæti með sjö stig en Þróttarar á botninum með einungis tvö stig. 1. júní 2009 18:15
Gunnar Odds: Þurfum að smíða hafsenta Gunnar Oddsson, þjálfari Þróttar var yfirvegaður, sem endra nær, eftir tap sinna manna gegn Val fyrr í kvöld. 1. júní 2009 22:26
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings