Enski boltinn

Þetta var bjánalegt sjálfsmark

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Abou Diaby í leik með Arsenal.
Abou Diaby í leik með Arsenal. Nordic Photos / Getty Images
Abou Diaby varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark sem reyndist sigurmark Manchester United gegn Arsenal um síðustu helgi.

Diaby segir í samtali við The Sun í dag að sjálfsmarkið hafi verið einkar „bjánalegt".

„Ég verð að gleyma því. Ég gerði bjánaleg mistök og það er erfitt að útskýra hvað gerðist."

„Markvörðurinn kallaði á mig og sagði mér að láta boltann í friði. Þetta var allt mér að kenna. Jafnvel þegar ég skoða upptöku af markinu finnst mér að svona lagað eigi ekki að vera mögulegt."

Diaby komst svo skömmu síðar í leiknum í gott færi þar sem hann hefði getað bætt fyrir mistökin en hann skaut framhjá.

„Ég var svo upptrekktur og flýtti mér að taka skotið," sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×