Segist hafa útskýrt málin fyrir dómara 17. mars 2009 16:47 Erlendur Gíslason segir að kaupmáli milli hans og konu hans hafi ekki haft með fjárhagslega stöðu hans að gera.
Erlendur Gíslason, skiptastjóri Baugs, mun halda áfram sem skiptastjóri þrotabús Baugs, þrátt fyrir gagnrýni í fjölmiðlum vegna starfa sem lögmannsstofan Logos, sem Erlendur er meðeigandi í, vann vegna fjárfestinga sem tengjast Baugi. Erlendur segir í samtali við fréttastofu að dómari hafi vitað um að Logos hefði á undanförnum árum unnið að tveimur eða þremur málum sem væri öllum lokið og hefðu ekki áhrif á störf hans sem skiptastjóra. „Og inn í þessum tveimur, þremur málum væru mál þar sem Baugur væri ekki einu sinni viðsemjandi, bara tengjast Baugi," segir Erlendur. „Aðalatriðið er að allt þetta moldviðri byrjaði þegar einhver segir að við séum lögmenn Baugs. Að við séum stofan sem Baugur leitar alltaf til," segir Erlendur. Hann segir þetta vera rangt og bendir á að sú lögmannsstofa sem Baugur hafi átt mest viðskipti við sé Lögmenn Höfðabakka. Erlendur bendir auk þess á að hann sé að vinna að því að gæta hagsmuna kröfuhafa Baugs og jafnræðis þeirra á milli. Dómsstjóri í Héraðsdómi Reykjavíkur segir að það eina sem dómurinn hafi um málið að segja sé að áður en Erlendur var skipaður skiptastjóri í þrotabúi Baugs Group hafi dómari innt hann eftir því hvort fyrir hendi væru einhverjar þær aðstæður er leiddu til vanhæfis hans sem skiptastjóra og hafi hann ekki kveðið svo vera. Þá hefur Erlendur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar á Vísi og í Bylgjufréttum í morgun um kaupmála milli hans og konu hans. Tekur Erlendur fram, að gerð kaupmálans hafi ekkert haft með fjárhagslega stöðu hans að gera. Hann og LOGOS lögmannsþjónusta muni ekki víkja sér undan því að svara fyrir faglegt hæfi sitt og lögmannsstofunnar til að Erlendur gegni starfi skiptastjóra í þrotabúi Baugs Group hf. Hins vegar óski hann þess að persónuleg málefni sín verði ekki að ósekju dregin inn í umræðu um hæfi sitt.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira