Enski boltinn

Hertha Berlín á höttunum eftir Voronin

Ómar Þorgeirsson skrifar
Andriy Voronin.
Andriy Voronin. Nordic photos/AFP

Forráðamenn þýska félagsins Hertha Berlín viðurkenna að framherjinn Andriy Voronin hjá Liverpool sé undir smásjánni hjá þeim en leikmaðurinn þótti standa sig afar vel á lánstíma sínum hjá felaginu á síðustu leiktíð.

Voronin er ekki framarlega í goggunarröðinni á Anfield og forráðamenn þýska félagsins eru því vongóðir um að tryggja sér þjónustu Úkraínumannsins.

„Ég er í góðu sambandi við Andriy og er nýbúinn að tala við hann í síma. Hann veit að dyrnar hjá okkur eru opnar fyrir honum því hann var frábær hérna á síðustu leiktíð," segir knattspyrnustjórinn Lucien Favre hjá Hertha Berlín í viðtali við Bild.

Michael Preetz, yfirmaður knattspyrnumála hjá þýska félaginu, tekur í sama streng.

„Við viljum ólmir fá Voronin aftur. Ef það er fjárhagslegur möguleiki á samningum þá munum við klárlega skoða það," segir Preetz.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×