Innlent

Stálu staðsetningatækjum

Brotist var inn í nokkra bíla í Reykjavík og Hafnarfirði í gær en sjö slíkar tilkynningar bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Þess má geta að GPS-tækjum var stolið úr þremur þeirra en fjölda slíkra tækja hefur verið stolið úr bílum á höfuðborgarsvæðinu undanfarið. Lögreglan ítrekar að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×