Ólafur Þór Gunnarsson í markið hjá Fylkismönnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júlí 2009 19:45 Ólafur Þór Gunnarsson hefur leikið með Val, ÍA og ÍR í efstu deild.
Ólafur Þór Gunnarsson mun taka fram markmannshanskana á ný og verja mark Fylkismanna það sem eftir lifir af tímabilinu en Fjalar Þorgeirsson markvörður liðsins, handarbrotnaði í síðasta leik. Ólafur Þór tók þátt í tveimur leikjum ÍR í 2. deildinni í fyrra en spilaði síðast heilt tímabil með Þrótti sumarið 2007 en varð í kjölfarið að hætta vegna meiðsla. Ólafur hefur ekki leikið í úrvalsdeildinni síðan að hann stóð í marki Vals sumarið 2003. „Það hjálpar okkur klárlega að vera búnir að fá markmann. Við vorum með einn markmann en það er algjörlega nauðsynlegt fyrir okkur að hafa tvo markmenn," sagði Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis. „Þetta var sorglegt fyrir bæði Fjalar og liðið að missa Fjalar. Hann er búinn að vera einn besti maður liðsins í sumar og það er mikið skarð höggið í liðið hjá okkur við þetta. Við vonumst bara að þeir sem eru hjá okkur núna nái að fylla í hans skarð," segir Ólafur en fyrir hjá liðinu var varamarkvörðurinn Daníel Karlsson. Ólafur Þórðarson hefur ekki áhyggjur af því að Ólafur Þór sé ekki búinn að spila í langan tíma. „Hann hefur verið að æfa og er í ágætu formi. Ólafur stóð sig mjög vel á æfingunni áðan eins og við var að búast," sagði Ólafur. Þeir voru saman hjá ÍA þegar Ólafur þjálfaði nafna sinn frá 2000 til 2002. „Ég var með hann í þrjú ár upp á Skaga og við vorum Íslandsmeistarar saman. Ég þekki því vel til hans, er með reynslu af honum og þekki karakterinn," sagði Ólafur en hann er ekki búinn að ákveða hvor þeirra byrjar í bikarleiknum á móti Fram á morgun. „Ég er ekki búinn að ákveða hvor þeirra stendur í markinu á morgun en að kemur bara í ljós," sagði Ólafur að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Fleiri fréttir Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Sjá meira