Landsmenn óvelkomnir í sumarhöll Lýðs 13. september 2009 18:51
Mikil öryggisgæsla er við sumarhús Lýðs Guðmundssonar í Fljótshlíð. Myndavélar og skilti eru til varnar því að ókunnugir fari upp að húsinu. Lambalækur, sumarhús Lýðs Guðmundssonar, sem kenndur er við Bakkavör, er í Fljótshlíðinni, sem er í rúmlega 100 kílómetra akstursfjarlægð frá Reykjavík. Húsið er allt hið glæsilegasta. Stendur hátt og er með útsýni yfir landið og miðin. Meðal annars sést til Vestmannaeyja til suðurs og jöklasýn er til austurs. Húsið sjálft er rúmlega 550 fermetrar, en þegar allt er meðtalið, til að mynda niðurgrafin véla- og tækjageymsla, er byggingin samtals um 900 fermetrar. Húsakosturinn er algerlega úr takti við hefðbundna sveitabæi í nágrenninu hvað íburð varðar, en kostnaður við bygginguna fer ekki undir 300 milljónum samkvæmt heimildum fréttastofu. Lokið var að mestu við húsið fyrir bankahrun, síðan hefur þó verið unnið að ýmsum frágangi, bæði innandyra og utan. Greinilega hefur verið vandað mjög til verka. Inni í húsinu er að sögn allt til alls, en lögð áhersla á íslenska efnisnotkun, til að mynda eru blágrýtisflísar víða. En þótt sauðféð rambi um grasbalana óáreitt, er þess vandlega gætt að óviðkomandi láti það vera að guða á glugga og eru stöðugir ljósblossar til marks um að myndavélagæslan sé vel virk. Landsmenn eru því ekki velkomnir í Fljótshlíðina, í það minnsta ekki heim að Lambalæk.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Sjá meira