Telja að kröfuhafar hafi verið blekktir 10. mars 2009 05:00 Mættust í réttarsal. Þeir Stefán Hilmarsson, fjármálastjóri Baugs Group (fjær til vinstri), og Ragnar H. Hall, lögmaður félagsins, mættu Andra Árnasyni (nær til vinstri) og Ingva Hrafni Óskarssyni, lögmönnum Glitnis og Íslandsbanka, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.Fréttablaðið/GVA
Staða Baugs Group er miklu verri en fram kom á fundi með kröfuhöfum félagsins. Beitt var meðvituðum blekkingum með því að leggja úreltar upplýsingar fyrir fundinn. Þetta fullyrtu lögmenn Íslandsbanka og skilanefndar Glitnis í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þar var tekist á um þá kröfu Baugs Group að greiðslustöðvun félagsins yrði framlengd um þrjá mánuði. Félagið hefur verið í greiðslustöðvun frá 11. febrúar 2009. Bæði Íslandsbanki og skilanefnd Glitnis mótmæla framlengingu greiðslustöðvunar, og vilja að félagið verði sett í þrot. Skuldir Baugs Group við Glitni nema um 42 milljörðum króna, sagði Andri Árnason, lögmaður skilanefndar bankans, í héraðsdómi í gær. Skuldirnar við Íslandsbanka eru tæpir 6 milljarðar króna, sagði Ingvi Hrafn Óskarsson, lögmaður bankans. Kröfur þeirra voru svo til samhljóða. Báðir sögðu hugmyndir sem forsvarsmenn félagsins hafi sett fram um fjárhagslega endurskipulagningu óraunhæfar. Engar líkur væru á því að lífvænlegt fyrirtæki kæmi út úr endurskipulagningunni. Stærstur hluti skulda Baugs Group við Íslandsbanka og Glitni er með tryggingum í eignum félagsins erlendis. Lögmenn bankanna sögðu veðin lítils sem einskis virði þar sem þau félög sem lögð séu til tryggingar væru flest komin í skiptameðferð, eða hefðu verið yfirtekin af kröfuhöfum. Á fjórða tug kröfuhafa sátu fund nýverið þar sem farið var yfir stöðu Baugs Group. Af öllum þeim fjölda hafa aðeins tveir, Íslandsbanki og Glitnir, gert athugasemdir við að félagið verði áfram í greiðslustöðvun, sagði Ragnar H. Hall, lögmaður Baugs Group. Hann segir tilganginn með áframhaldandi greiðslustöðvun vera að fá tíma fyrir fjárhagslega endurskipulagningu félagsins og nauðarsamninga við kröfuhafa. Hann benti á að félagið hefði tryggt sér nægar tekjur til að greiða allan rekstrarkostnað þann tíma sem greiðslustöðvunin myndi vara. Ragnar hafnaði með öllu fullyrðingum um að Baugur Group hefði meðvitað reynt að blekkja kröfuhafa. „Það var ekkert rangt, villandi eða misvísandi lagt fyrir fundinn með kröfuhöfunum,“ sagði Ragnar. Slíkt séu einfaldlega staðlausir stafir. Undir það tekur Stefán H. Hilmarsson, fjármálastjóri Baugs Group, sem sat málflutninginn í gær. Hann segir lögmenn bankanna misskilja skjöl sem þeir vísi til og tilgang þeirra. Dómari mun úrskurða um framhald á greiðslustöðvun Baugs Group á hádegi á morgun. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Sjá meira