Innlent

Fyrsta loðnan til Norðfjarðar

Úr myndasafni.
Úr myndasafni.
Börkur NK er væntanlegur til Neskaupstaðar nú klukkan tvö með þúsund tonna loðnufarm, en þetta er fyrsta loðnan sem þangað berst á þessari vertíð. Loðnan var veidd út á takmarkaðan rannsóknakvóta en skipstjórar í Eyjum krefjast þess í kjarnyrtri ályktun að stjórnvöld heimili nú þegar almennar loðnuveiðar.

Börkur fékk loðnuna vestur af Vestmannaeyjum í fjórum köstum, að sögn Herberts Jónssonar stýrimanns. Þrjú önnur skip fengu einnig loðnu í gær út af suðurströndinni; Guðmundur, Aðalsteinn Jónsson og Hákon, en áhafnir þeirra eru nú að frysta loðnuna um borð. Hrognafylling er 19 til 20 prósent sem þýðir að loðnan er á síðustu metrunum fyrir svokallaða Japansfrystingu.

Róbert Hafliðason, stýrimaður á Guðmundi, segir að þeir hafi fengið loðnuna út af Þjórsárósum í gær en segir að gangan sé nú út af Þorlákshöfn. Tvö skip eru að þreifa fyrir sér þar, Ásgrímur Halldórsson og Kap, en bræla í morgun hefur komið í veg fyrir að þau hafi kastað.

Öll skipin hafa fengið takmarkaðan rannsóknarkvóta, sem dugar í einn til tvo farma, en miðað við ályktun Skipstjóra og- stýrimannafélagsins Verðanda í Vestmannaeyjum í gær eru sjómenn orðnir óþolinmóðir að fá ekki að hefja alvöru veiðar. Þar er skorað á ríkisstjórnina að láta hefja loðnuveiðar strax.

"Íslenskt þjóðfélag er á hausnum í orðsins fyllstu merkingu og það eina sem Ríkisstjórn Íslands hefur hugann við er allt annað en sjávarútvegur," segja Eyjamenn og bæta við:

"Fullmönnuð ríkisstjórn af fólki sem hefur ekki hundsvit á sjávarútvegi er hneisa fyrir Ísland. Það eru mörg hundruð milljónir að tapast á hverjum degi meðan þið sem stjórnið landinu okkar vitið ekki að sjávarútvegurinn er það eina sem getur bjargað þessari þjóð frá gjaldþroti. Álver eða tónlistahús gera það ekki."

Og spurt er í ályktuninni:

"Hvernig ætlið þið í ríkisstjórninni að bjarga heimilum landsins ef ekki á að nota þetta tækifæri sem fellst í veiðum á loðnu ? Tíminn er stuttur sem þið hafið og þá erum við að tala um daga eða jafnvel klukkutímaspursmál. Stjórn Verðanda hvetur ríkisstjórnina til að láta af mannaveiðum og láta hefja loðnuveiðar ekki seinna en á morgun," segir í ályktuninni frá því í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×