Sport

Vona að þetta verði ekki minn síðasti leikur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guus Hiddink, stjóri Chelsea.
Guus Hiddink, stjóri Chelsea. Nordic Photos / AFP

Guus Hiddink, knattspyrnustjóri Chelsea, vonast til að leikurinn gegn Everton í úrslitum ensku bikarkeppninnar á morgun verði ekki hans síðasti leikur í enska boltanum.

Hiddink er einnig þjálfari rússneska landsliðsins og var fenginn á miðju tímabili til að taka við stjórn Chelsea eftir að Luiz Felipe Scolari var rekinn.

„Enska knattspyrna ber höfuð og herðar yfir aðrar deildir og því finnst mér að sjálfsögðu spennandi kostur að koma hingað aftur," sagði Hiddink á blaðamannafundi í morgun.

„Mér ber skylda til að fara aftur til Rússlands en freistingin er vissulega til staðar."

Hiddink er 62 ára gamall en vonast til að fá tækifæri til að koma aftur. „Ég er ekki að yngjast en eftir reynslu mína hjá Chelsea væri ég vissulega til í að koma aftur til Englands í framtíðinni."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×