FH-ingar hafa ekki unnið Fylki í Krikanum síðan 2004 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júlí 2009 17:15 Emil Hallfreðsson í síðasta sigurleik FH á Fylki fyrir fimm árum. Mynd/Stefán
FH-ingar taka í kvöld á móti Fylki í Pepsi-deild karla en það má segja að það hafi verið Árbæjargrýla í Kaplakrika undanfarin fimm ár. Síðast þegar FH vann heimaleik á móti Fylki í úrvalsdeildinni þá hafði félagið aldrei orðið Íslandsmeistari í knattspyrnu. Síðasti heimasigur FH á Fylki í úrvalsdeildinni var 1-0 sigur 19. júlí 2004. Emil Hallfreðsson skoraði eina mark leiksins með hnitmiðaðu langskoti á 63. mínútu leiksins og skaut þar með Fylki af toppnum og sendi sína menn í FH í efsta sætið. Sex leikmenn FH í dag voru í byrjunarliðinu í þessum leik (Daði Lárusson, Guðmundur Sævarsson, Sverrir Garðarsson, Tommy Nielsen, Freyr Bjarnason og Atli Viðar Björnsson) og aðrir tveir komu inn á sem varamenn í leiknum (Davíð Þór Viðarsson og Ásgeir Gunnar Ásgeirsson) FH vann fimm af næstu sjö leikjum og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta skiptið í sögu félagsins. FH-liðið vann titilinn einnig 2005 og 2006 og sat í efsta sætinu í samtals 60 umferðir í röð áður en Valsmenn náðu af þeim toppsætinu og síðar titlinum í lok mótsins 2007. Frá árinu 2004 hefur FH-liðinu, þrátt fyrir mikla velgengni og fjóra Íslandsmeistaratitla á fimm árum, ekki tekist að vinna Árbæinga á sínum heimavelli. Fylkir hefur unnið tvo leiki og tveir hafa endað með jafntefli. Markatalan er 6-4 Fylki í vil. Vandræði FH í heimaleikjum gegn Fylki ná reyndar lengra aftur en frá þessum sigurleik fyrir fimm árum því hann er eini heimasigur FH á Fylki á þessarri öld. Fylkir hefur unnið fjóra af síðustu átta leikjum liðanna í Kaplakrika og þrír leikjanna hafa endaði með jafntefli. Deildarleikir FH og Fylkis í Kaplakrika á þessarri öld: 2001 FH-Fylkir 0-0 2002 FH-Fylkir 0-3 2003 FH-Fylkir 1-2 2004 FH-Fylkir 1-0 2005 FH-Fylkir 1-2 2006 FH-Fylkir 2-2 2007 FH-Fylkir 0-0 2008 FH-Fylkir 1-2
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hausverkur fyrir Iraola Enski boltinn Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur Íslenski boltinn „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Bjóða hverjum sem vinnur Littler 84 milljónir Sport Rosenborgarar Freys óstöðvandi Fótbolti „Hefði nú verið betra að vera með tvo sigra“ Íslenski boltinn Mbappé sár eftir HM Fótbolti „Góðir tímar framundan“ Íslenski boltinn „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Íslenski boltinn Littler rústaði metum og varði titilinn Sport Fleiri fréttir „Góðir tímar framundan“ „Hefði nú verið betra að vera með tvo sigra“ „Mjög ánægður með margt í leiknum en óánægður með jafntefli“ Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Fyrirliði Njarðvíkur til Vals Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-0 | Ágúst Orri hetjan Aðstoðarþjálfari Jökuls í Vesturbæinn „Við eigum harma að hefna“ Sjáðu mörkin þegar ÍA kjöldró Stjörnuna Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Jóhannes Karl: Strákarnir eiga skilið frí yfir helgina Uppgjörið: ÍA-Stjarnan 5-1 | Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Uppgjörið: FH-Fram 0-0 | Mörg mörk síðast en ekkert í kvöld Kláraði Harvard og samdi við Blika Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Sjá meira