Zola: Tottenham er eitt af sex bestu liðunum 11. apríl 2009 22:15 AFP
Gianfranco Zola var að venju æðrulaus eftir að hans menn í West Ham máttu sætta sig við 1-0 tap fyrir grönnum sínum í Tottenham í dag. Sigur Tottenham þýðir að liðið er nú komið í áttunda sæti deildarinnar og ekki er útlokað að það eigi von á sæti í Evrópukeppni eftir að hafa verið á botni deildarinnar lengi framan af vetri. West Ham er þremur stigum á undan Tottenham í töflunni, situr í sjöunda sæti með 44 stig á meðan Tottenham er í áttunda með 41 stig þegar sex umferðir eru eftir. "Við erum enn þremur stigum á undan Tottenham og við reynum að verja það forskot eins og við getum. Það væri leiðinlegt ef strákarnir næðu ekki að landa sætinu, því þeir hafa lagt hart að sér," sagði Zola og hrósaði mótherjum sínum. "Tottenham er eitt af sex bestu liðum Englands og við spiluðum óttalaust og stóðum í þeim. Við hefðum auðveldlega geta hirti stig í þessum leik. Ég get bara hrósað strákunum mínum," sagði Zola. Harry Redknapp, stjóri Tottenham, viðurkenndi í fyrsta skipti að lið hans væri nú laust úr fallbaráttu eftir eina verstu byrjun í sögu félagsins. "Maður er aldrei öruggur og ég sagði fyrir leikinn að ég vildi ná í einn sigur í viðbót til að vera viss. Nú er hann kominn og það er ekki hægt annað en að vera ánægður með stöðu mála," sagði Redknapp og minnti enn eina ferðina á það hver staðan var þegar hann tók við liðinu í haust. "Við vorum jarðaðir á botninum með tvö stig eftir átta leiki og mig hefði aldrei dreymt um að eiga möguleika á Evrópusæti á þessari leiktíð," sagði Redknapp.
Enski boltinn Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Fleiri fréttir Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Sjá meira