Lagfærði húsið fyrir fimmfalt kaupvirði 25. júní 2009 06:00 Fjölnisvegur Hannes tengdi húsin sín saman með sérstökum gangi og keypti tölvubúnað í Fjölnisveg 9 fyrir sjö milljónir. Ríkislögreglustjóri leitaði á dögunum í húsinu.Fréttablaðið/arnþór
Hannes Smárason gerði endurbætur á húsi sínu við Fjölnisveg 9 fyrir um 350 milljónir króna á þriggja ára tímabili, árin 2005 til 2007, að því er fram kemur í bókhaldi hans. Hann keypti húsið árið áður á 70 milljónir – fimmtung af því sem hann átti síðar eftir að leggja í húsið. Þetta er meðal þess sem sjá má í úrskurði héraðsdóms, sem hafnað hefur kröfu Hannesar um að húsleitir á lögmannsstofunni LOGOS og Fjölnisvegi 9 og 11 yrðu úrskurðaðar ólögmætar. Í fundargerðum skipulagsráðs Reykjavíkurborgar kemur fram að Hannes hafi meðal annars fengið leyfi til að tengja bílageymsluna að Fjölnisvegi 9 við bílageymsluna að Fjölnisvegi 11, með viðbyggingu, tengigangi og svölum. Einnig var honum heimilað að endurnýja þak hússins, breyta innra fyrirkomulagi á öllum hæðum þess, stækka eldhúsið með viðbyggingu, rífa skorstein og koma upp svölum á norðausturhlið hússins. Að auki keypti Hannes tölvubúnað fyrir tæpar sjö milljónir í Fjölnisveg 9, og innbú fyrir fimmtán milljónir í Fjölnisveg 11. Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra rannsakar nú hvort skattsvik voru framin þegar húsin tvö, Fjölnisvegur 9 og 11, voru seld frá eignarhaldsfélagi Hannesar til Hannesar sjálfs og konu hans með þriggja milljóna tapi. Segir í greinargerð lögreglu að ætla megi að kaupin hafi „ekki verið gerð í ábataskyni heldur sé hugsanlega um málamyndagerning að ræða“. Þá er einnig til rannsóknar hvort lög voru brotin þegar FL Group, sem Hannes fór fyrir, keypti flugfélagið Sterling af félaginu Fons árið 2005. Lögregla telur að Sterling hafi verið keypt á yfirverði, sem hafi valdið FL Group verulegu fjárhagslegu tjóni. Helgi Magnús Gunnarsson segir að gagna hafi verið aflað vegna málsins, en ekki hafi verið leitað sérstaklega hjá Pálma Haraldssyni eða Jóhannesi Kristjánssyni, þáverandi eigendum Fons. Þeir hafi ekki heldur verið yfirheyrðir. Fleiri meint brot eru til rannsóknar, meðal annars 46,5 milljóna dala lán FL Group til Hannesar, sem þá jafngilti um þremur milljörðum króna. Skömmu eftir lánveitinguna sögðu þrír fulltrúar sig úr stjórn FL Group. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Fleiri fréttir Láti eins og þjóðin geti ekki skilið um hvað málið snúist Illa lagður pallbíll upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Bein útsending: Kristrún með ávarp vegna atkvæðagreiðslunnar Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Sjá meira