Kostnaður ríkisins 271 milljarður króna 21. júlí 2009 04:15 Blaðamannafundur í þjóðmenningarhúsinu Endurfjármögnun og endurskipulagning á eignarhaldi bankanna þriggja var kynnt í gær. Steingrímur J. Sigfússon segir mikilvægt að óvissu um framtíð bankanna sé eytt. Fréttablaðið/GVA
Framlag íslenska ríkisins til endurfjármögnunar bankanna þriggja nemur 271 milljarði króna. Fjármagnið verður lagt til bankanna þann 14. ágúst næstkomandi. Hugsanlegt er að framlagið lækki um 73 milljarða í 198 milljarða króna ef kröfuhafar Glitnis og Kaupþings fallast á samkomulag þess efnis að þeir eignist Nýja Kaupþing og Íslandsbanka að hluta eða öllu leyti. Landsbanki Íslands kemur til með að vera að fullu í eigu ríkisins. Frá þessu var greint á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í gær. „Það er afskaplega mikilvægt við þetta samkomulag að það er verið að lágmarka kostnað ríkisins og þar með skattgreiðenda af falli bankanna," segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. „Þetta samkomulag mun stuðla að auknu aðgengi að lánsfjármörkuðum erlendis og draga úr hættu á málssókn á hendur ríkinu." Samkvæmt samkomulaginu munu erlendir kröfuhafar eignast 87 prósenta hlut í Nýja Kaupþingi. Ríkið mun því eiga að lágmarki þrettán prósenta hlut í bankanum og alls óvíst hvort sá hlutur verður seldur, en hugsanlegt er að hlutur ríkisins verði stærri. Kröfuhöfum Glitnis gefst kostur á að eignast Íslandsbanka að öllu leyti. Óljóst er á þessari stundu hvort kröfuhafar nýti sér þennan kost og hugsanlegt að eignarhaldið muni verða að hluta til í höndum ríkisins. Ef kröfuhafar nýta sér ekki þann kost að eignast Nýja Kaupþing og Íslandsbanka nú í haust hafa þeir kauprétt á hlutum í bönkunum tveimur á árunum 2011 til 2015. „Þetta samkomulag dregur úr fjárbindingu ríkisins í bankakerfinu," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. „Það er mikilvægt að óvissunni er eytt og það á ekkert að geta komið í veg fyrir að bankarnir verði endurfjármagnaðir þann 14. ágúst." Hann segir að það sé möguleiki að erlendu kröfuhafarnir hafni samkomulaginu um að gerast hluthafar í nýju bönkunum. Ef svo fer þá muni áætlun taka við þar sem ríkið mun eiga bankana áfram. Ef svo fer munu kröfuhafar eiga kauprétt sem mun hljóða upp á upphaflegt framlag auk vaxta og álags. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins nemur álagið fimm prósentum ofan á þá fjárhæð.bta@frettabladid.is
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið Sjá meira