Brjálað að gera í fataviðgerðum í kreppunni Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 21. júlí 2009 14:08 Saumavélarnar fá vart frið þessa dagana. Mynd/ÞÖK
Það er brjálað að gera í fataviðgerðabransanum um þessar mundir, en það er samdóma álit saumaverkstæða sem fréttastofa hafði samband við. Telja forsvarsmenn þeirra víst að margir kjósi frekar að láta gera við gömul föt eða breyta þeim, en að kaupa ný í kreppunni. „Fólk hendir ekki buxunum sínum í dag þó það komi gat á þær," segja Súsanna og Lára Magnúsdætur sem reka Saumastofuna í Fákafeni. Að þeirra sögn er bókstaflega allt brjálað að gera, einkum í viðgerðum, þar sem mikillar aukningar gætir. Þær segja marga koma til sín til að láta breyta gömlum fötum; þrengja þau, víkka eða stytta, frekar en að kaupa ný. Arna Arnfinnsdóttir, annar eigandi Saumnálarinnar, hefur svipaða sögu að segja: „Fólk er minna að kaupa sér ný föt. Það kemur frekar með gamalt úr skápnum sem þarf að laga eða gera við." Hún hefur sömuleiðis orðið var við aukin viðskipti, og segir saumakonurnar oft vinna fram á kvöld. Auður Þórisdóttir, kjólameistari Saumsprettunnar, tekur í sama streng, og segir biðtíma hafa lengst mikið undanfarna mánuði. „Fyrir ári síðan var yfirleitt í mesta lagi tveggja vikna bið, þegar allra mest var að gera. Nú eru þetta þrjár til fjórar vikur að staðaldri og búið að vera síðan í febrúar," segir Auður.
Mest lesið Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Innlent Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Innlent Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Erlent Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Erlent „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Innlent Einn handtekinn eftir stunguárás Innlent Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Innlent Fleiri fréttir Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Einn handtekinn eftir stunguárás Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Sjá meira