Þurfum að halda áfram og byggja á sigrinum Ómar Þorgeirsson skrifar 23. júlí 2009 07:00 Rafn Andri Haraldsson í leik með Þrótti.
Þróttarar fundu taktinn svo eftir var tekið gegn Breiðabliki í Pepsi-deild karla á dögunum og unnu 4-0 stórsigur. Þetta var annar sigurleikur Þróttara í deildinni í sumar og kom þeim upp úr botnsætinu. Miðjumaðurinn snjalli, Rafn Andri Haraldsson, átti frábæran leik með Þrótturum og hann vonast til þess að liðið sé nú komið á beinu brautina eftir heldur dapurt gengi framan af sumri í Pepsi-deildinni. „Þetta var bara frábær leikur hjá okkur og það gekk nánast allt upp sem við gerðum, hvort sem það var varnarlega eða sóknarlega. Það voru líka nokkrir nýir leikmenn sem spiluðu vel fyrir okkur í leiknum og koma sterkir inn í þetta. Við vorum samt ekkert að spila fáránlega illa fram að þessum leik en við höfum samt verið að fá á okkur alltof mikið af mörkum og ekki verið að skora nóg. Það breyttist sem betur fer í þessum leik og við vörðumst mjög vel sem lið, alveg frá fremsta manni til þess aftasta og náðum að sækja hratt á þá og það er styrkur okkar. Við erum með hraða stráka fram á við og við þurfum að halda áfram og byggja á sigrinum," segir Rafn Andri ákveðinn. Þróttarar mæta Stjörnunni í Pepsi-deildinni í kvöld en þeir eiga ekki góðar minningar úr fyrri leiknum gegn Garðbæingum í sumar sem endaði með 0-6 rassskellingu á Valbjarnarvelli. Rafn Andri segir Þróttara ætla að mæta ákveðna til leiks í þetta skiptið, annað en þeir gerðu í fyrri leiknum. „Við ætlum klárlega að hefna fyrir það sem gerðist í fyrri leiknum. Við hefðum alveg eins getað sleppt því að mæta í þann leik, við vorum svo lélegir. Við eigum erfiða leiki gegn Stjörnunni og KR í næstu leikjum en við verðum bara að halda áfram. Það geta allir unnið alla í þessari deild og þeir sem mæta betur stemmdir í leikina, þeir vinna þá," segir Rafn Andri.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sturluð lokaumferð fyrir skiptingu: Hvaða lið enda fyrir ofan strik? Íslenski boltinn Stefnir á heimsmet og segist aldrei hafa verið í betra formi Sport Sjáðu mörkin úr stórsigrum Arsenal og Spurs og dramatíkina í Lundúnum Enski boltinn „Draumur síðan ég var krakki“ Fótbolti Guðrún Karítas fjarri nýja metinu á sínu fyrsta HM Sport Dagskráin í dag: Manchester-slagur á sófasunnudegi Sport Ragnhildur endaði önnur eftir bráðabana Golf Vandræðalegt víti frá Messi Fótbolti „Ég eiginlega bara trúi þessu ekki“ Fótbolti De Bruyne og Højlund skoruðu gegn Albertslausu Fiorentina Fótbolti Fleiri fréttir Sturluð lokaumferð fyrir skiptingu: Hvaða lið enda fyrir ofan strik? Þórsarar upp í Bestu deildina en Selfoss féll „Síðasti hálfi mánuðurinn hefur verið hundleiðinlegur“ „Þeir sem standa sig betur hreppa hnossið“ Uppgjör: Stjarnan - Fram 3-1 | Stjörnukonur komust upp í fjórða sæti með sigri gegn Fram KR verður án tveggja sem fengu heilahristing á æfingu Uppgjörið: FH - Víkingur 1-2 | Víkingar á mikilli siglingu Uppgjörið: Þór/KA - Þróttur 0-1 | Keyra heim með sigur í farteskinu Aðeins þrjú lið fengið færri stig í seinni umferðinni en meistararnir Sjáðu mörkin: ÍA rúllaði yfir Íslandsmeistarana „Setti oft fótboltann fram yfir mína andlegu heilsu“ „Ljúft að klára leikinn svona“ „Þá gætum við lagst niður og gefist upp“ Uppgjörið: ÍA - Breiðablik 3-0 | Áfram með hreðjatak á Blikum „Menn þurfa að fara að átta sig á því“ Fullnaðarsigur Arnars „Þú veist að það er bara einn Siggi Hall“ Breiðablik hafnaði tilboði í Ágúst Orra Bestu mörkin: Getur reynslumesti þjálfarinn ekki leyst úr þessu? Sjáðu FHL sækja stig gegn Þrótti Uppgjörið: Þróttur - FHL 2-2 | Jafnt í Laugardalnum Innlit í löngu úrelta klefa Íslands sem Ceferin vill láta taka í gegn Uppgjörið: Stjarnan - Þór/KA 4-1 | Stjarnan upp í efri hlutann Þróttur lánar sextán ára strák til Inter Milan Hetja Blika: „Einn leikur í einu“ „Betra fótboltaliðið tapaði í dag“ Sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur upp í Bestu eftir ótrúlegan sigur Uppgjör: Víkingur - Valur 3-2 | Víkingur náði í dýrmæt stig í fallbarátunni Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-1 | Ótrúleg endurkoma og Blikar að stinga af Uppgjörið: Tindastóll - Fram 1-0 | Lífsnauðsynlegur sigur Stólanna Sjá meira