Fólksflóttinn gæti kostað þjóðina sextíu milljarða 21. ágúst 2009 06:00 Fólksflóttinn gæti kostað sitt.
Þegar spurt er um kostnað af niðurfellingu húsnæðisskulda mætti eins líta til kostnaðar af óbreyttu ástandi. Hann gæti verið rúmir sextíu milljarðar á ári hverju. Íslenska kreppan er verri en sú færeyska var á tíunda áratugnum, en þá flúðu eyjarnar 35 prósent fólks á aldrinum 20 til 35 ára. Svipaður flótti héðan kostaði íslenska ríkið þessa sextíu milljarða, með því að skatttekjur skertust um sextán prósent. Að auki væru flóttamennirnir verðmætt, menntað fólk, sem landið má síst við að missa. Þetta er mat Benedikts Jóhannessonar, tryggingastærðfræðings og ritstjóra Vísbendingar, á stöðunni sem stjórnmálamenn standa nú frammi fyrir. Benedikt hefur skrifað um þessi mál og segir að allajafna myndi hann telja almennar afskriftir skulda afar óheppilegar. Núverandi aðstæðum megi hins vegar líkja við náttúruhamfarir, og kalli á pólitískt þor. Erfitt sé að meta beinan kostnað af þessum hugmyndum, en hann yrði minni en ef fólkið hverfur á brott. „Ég hef séð fyrir mér að gengistryggð lán yrðu til dæmis lækkuð um þrjátíu prósent en verðtryggð um tíu. Þeir sem tóku tíu milljóna króna lán í erlendri mynt skulda nú tuttugu milljónir. Slíkt lán færi með niðurfellingu í fjórtán og hefði þá hækkað um fjörutíu prósent. Það er samt mikill skellur, en kannski innan þess viðráðanlega," segir hann. Beita mætti svipuðum aðgerðum og bankarnir bjóða nú þegar upp á, það er að stofnaður yrði biðreikningur um hluta skuldanna og hann fluttur fram í tímann. Að endingu myndi ríkið „sjá um þessa sameiginlegu byrði". Spurður um sanngirni þess, að skattgreiðendur borgi skuldir þeirra sem voru ef til vill óvarkárir, segir Benedikt: „Það var kannski ekkert mikið að skulda tíu milljónir, en það getur verið fólki ofviða þegar þær eru tuttugu. Enginn getur búist við því að lánastofninn hækki um hundrað prósent á einu bretti. Þetta fólk er að bera byrðarnar af falli krónunnar; það var ekki endilega óvarkárt. Eftir hrunið var fé sett í að tryggja innstæður og tvö hundruð milljarðar settir í peningamarkaðssjóði, án þess að það færi fyrir Alþingi. Nú er kominn tími til að hlaupa undir bagga með skuldurum." Ekki sé aðalatriði hvort fólk geti borgað af lánunum núna eða ekki. Þeir sem borgi áfram af gengistryggðu láni geti ef til vill ekki leyft sér neitt annað. Íbúðin lækki í verði og launin um leið. Það sé ekki björt framtíð.
Mest lesið Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Innlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Vaktin: Páskastormur í aðsigi Veður Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Veður Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Fleiri fréttir Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Sjá meira