Innlent

Jóhanna Guðrún sigraði í Eurovision

Lagið Is it true eftir Óskar Pál Sveinsson sigraði keppnina. Jóhanna Guðrún Jónsdóttir mun flytja lagið í Moskvu í maí.
Lagið Is it true eftir Óskar Pál Sveinsson sigraði keppnina. Jóhanna Guðrún Jónsdóttir mun flytja lagið í Moskvu í maí.
Í kvöld varð ljóst hvaða lag verður framlag Íslands í söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva sem haldin verður í Moskvu 16. maí. Jóhanna Guðrún Jónsdóttir sigraði með laginu Is it true eftir Óskar Pál Sveinsson.

Alls kepptu 16 lög í undankeppninni sem fór fram í fjórum laugardagsþáttum í sjónvarpinu. Eftir stóðu átta lög sem kepptu sín á milli í kvöld um að komast í lokakeppina í Moskvu.

Undir regnbogann eftir Hallgrím Óskarsson í flutningi Ingós í Veðurguðunum lenti í öðru sæti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×