Sögufrægir búningar boðnir upp í Þjóðleikhúsinu 28. ágúst 2009 01:00 Tinna gunnlaugsdóttir Þjóðleikhússtjórinn ætlar að klæðast Smirnoff-kjólnum úr Ástin er diskó – lífið er pönk á uppboðinu á morgun.fréttablaðið/arnþór
Opið hús verður í Þjóðleikhúsinu á morgun og af því tilefni verða sögufrægir búningar boðnir upp um þrjúleytið. „Þetta verður bara gaman. Þetta eru rosafínir búningar og það verður örugglega slegist um þetta,“ segir leikkonan Ólafía Hrönn Jónsdóttir, sem verður uppboðshaldari. Alls verða fimm búningar boðnir upp úr jafnmörgum leikritum og munu þekkt andlit úr Þjóðleikhúsinu klæðast þeim í von um að gera þá enn þá söluvænlegri. Sjálfur þjóðleikhússtjórinn Tinna Gunnlaugsdóttir mun klæðast Smirnoff-kjólnum úr söngleiknum Ástin er diskó – lífið er pönk, Björn Thors verður í kóngabúningnum úr Hamlet, Birgitta Birgisdóttir klæðist búningi Grétu úr leikritinu Hans og Gréta, Friðrik Friðriksson verður í búningi bakaradrengsins úr Dýrunum í Hálsaskógi og Sigríður Þorvaldsdóttir klæðist búningi Soffíu frænku úr Kardemommubænum. Ekki hefur verið ákveðið hvert upphafsverð búninganna verður en ljóst er að margir eiga eftir að bera víurnar í þá, enda ekki á hverjum degi sem almenningi gefst kostur á að eignast slíka kostagripi. Á opna deginum í fyrra voru til sölu sæti úr Þjóðleikhúsinu og kostaði stykkið sjö þúsund krónur. Runnu þau út eins og heitar lummur og prýða nú heimili íslenskra leikhússáhugamanna. Ólafía Hrönn á von á skemmtilegum opnum degi bæði í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu, þar sem hann verður haldinn sama dag. „Það er um að gera fyrir fólk að fara í bæði húsin og taka pylsurnar hér og fá sér síðan vöfflurnar úr Borgarleikhúsinu,“ segir hún. „Það er mjög sniðugt fyrir fjölskyldur að koma og sjá hvernig veturinn lítur út hérna. Það var ógurlega gaman í fyrra. Þá var fólk að koma með börnin sín og þau sáu leikarana í nálægð. Krökkunum fannst það rosalega gaman.“ Á opna deginum, sem stendur yfir frá 13 til 16, verður jafnframt skráning í áheyrnarprufur fyrir söngleikinn Oliver! sem verður frumsýndur í febrúar. Leitað er að 20 til 30 drengjum á aldrinum 8 til 13 ára sem munu fara með hlutverk Olivers, Hrapps og drengjanna í þjófaflokknum og á munaðarleysingjahælinu. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Var ekki að lifa lífinu heldur að þrauka það Lífið Handlagin hjón selja tvær eignir í sögulegu farandshúsi Lífið Kolféll fyrir New York en sér íslenska náttúru í hillingum Lífið Sú elsta í sögu Ungfrú Ísland glímdi við átröskun og varð minnst 39 kíló Lífið Kjalar ástfanginn í tvö ár Lífið Tónlistarbransadrottning selur miðbæjarslotið Lífið Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Bíó og sjónvarp Óttar keypti 320 milljóna króna þakíbúð Lífið Enginn til ama á hátíðinni Tíska og hönnun Alda Karen keppir í hermiakstri Lífið Fleiri fréttir Skvísurnar tóku yfir klúbbinn Tónlistarbransadrottning selur miðbæjarslotið Handlagin hjón selja tvær eignir í sögulegu farandshúsi Kjalar ástfanginn í tvö ár Diddú tíu þúsundasti gestur fótboltabullnanna Sú elsta í sögu Ungfrú Ísland glímdi við átröskun og varð minnst 39 kíló Alda Karen keppir í hermiakstri Var ekki að lifa lífinu heldur að þrauka það Eilish sópaði að sér verðlaunum á AMA-hátíðinni Kolféll fyrir New York en sér íslenska náttúru í hillingum Brauðtertu- og ostakökukeppni á Selfossi Sara Björk og Árni kaupa í Urriðaholti Senjórítur og Pálmi Gunnars stálu senunni á Rottweiler Eyjaherrar heiðruðu sjötugan Ásgeir í stjörnufans „Þessi þriggja daga hátíð er algjört konfekt” Þarf ekki stóra íbúð til að gera heimilið fallegt Ásta Kristrún og Valgeir biðla til vina í leit að húsnæði Óttar keypti 320 milljóna króna þakíbúð Segist hafa neyðst til að vera Laufey í beinni útsendingu Stjörnulífið: Fröllur í poka og franska rívíeran Ástir, losti, fíkn og svik – dauði Marilyn Monroe Flytur til Sydney Drake kom fram á tónleikum í 66°Norður Reisa styttu af Birni í Kópavogi Lauk krefjandi háskólanámi og barðist við lífshættuleg veikindi á sama tíma Krakkatían: Mona Lisa, VÆB og Þjóðhátíð Segja Freddie Mercury eiga laundóttur Dráttarvéladagur er á Blikastöðum í dag Skotin flakka milli Enoks og Birgittu: „Settu franskarnar í pokann“ Sinnir sjúklingum í sama herbergi og hún fékk greiningu Sjá meira