Guðjón óánægður með framherjana Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. apríl 2009 16:45 Guðjón Þórðarson, þjálfari Crewe. Nordic Photos / Getty Images
Guðjón Þórðarson hefur lýst vonbrigðum sínum með framherja Crewe sem hafa ekki skilað sínu í síðustu leikjum liðsins í ensku C-deildinni. Fá félög eyddu jafn miklu í leikmannakaup síðastliðið sumar og Crewe en félagið keypti leikmenn fyrir 800 þúsund pund. Stærsti hluti þeirrar upphæðar fór í framherjana Calvin Zola, Joel Grant, Clayton Donaldson og Anthony Elding. En þessir framherjar hafa samanlagt aðeins skorað eitt mark í síðustu sjö leikjum liðsins. Það hafa verið leikmennirnir Shaun Miller og Tom Pope sem hafa verið hvað duglegastir við að skora mörk liðsins en þeir eru báðir uppaldir hjá félaginu. Crewe hefur ekki unnið í síðustu níu leikjum liðsins og hefur markaleysið verið helsta ástæðan fyrir því gengi. Fyrir vikið er liðið nú í fallsæti þegar ein umferð er eftir og á litla möguleika á að halda sæti sínu í deildinni. Crewe tapaði síðast fyrir Stockport, 4-3, í deildinni en öll mörk liðsins voru skoruð af varnarmönnum. „Hvar eru mörkin frá framherjunum okkar," sagði Guðjón í samtali við enska fjölmiðla. „Ég get ekki talið öll þau færi sem við höfum skapað okkur en það þarf að klára þessi færi." „Við skoruðum þrjú mörk en það er engu að síður hneykslanlega lítið miðað við öll færin sem fóru forgörðum."
Enski boltinn Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hull City - Manchester United | Rauðu djöflarnir í heimsókn hjá nýliðunum Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Sjá meira