Mikið um slys á fólki um helgina 16. febrúar 2009 22:13
Allnokkuð var um slys á fólki um helgina en lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust vel á annan tug tilkynninga þess efnis. Óhöppin voru af ýmsu tagi en minnst þrír beinbrotnuðu á laugardagsmorgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Þar segir að um hafi verið að ræða konu um fertugt sem datt úr stiga í Árbæ, tæplega tvítugan pilt sem ökklabrotnaði í knattspyrnuleik í Kópavogi og karl á fimmtugsaldri sem hrasaði í Háaleitishverfi. Á laugardag brenndist sömuleiðis ung stúlka þegar yfir hana helltist heitur drykkur. Hún var flutt á slysadeild en frekari upplýsingar um líðan hennar liggja ekki fyrir. Meirihluti tilkynninganna um slys á fólki var hinsvegar tilkomin vegna skemmtanahalds í miðborginni eða heimahúsum. Ýmsir gengu fullhratt um gleðinnar dyr en áverkar hinna sömu voru í flestum tilvikum minniháttar. 33 UMFERÐARÓHÖPP Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU Þrjátíu og þrjú umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en tvö þeirra má rekja til ölvunaraksturs. Nær öll óhöppin voru minniháttar en í nokkrum tilvikum þurfti þó að flytja fólk á slysadeild. Betur fór því en á horfðist enda lítið mál að laga beyglur og rispur hér og þar á ökutækjum. Öllu alvarlegra er með líkamstjón en til allrar hamingju hélt einhver verndarhendi yfir vegfarendum þessa helgina. Það átti t.d. við um fólkið sem var í bílnum sem valt og endaði utan vegar sunnan Hafnarfjarðar á laugardagskvöld. Þrennt var í bílnum, karl og tvær konur, og sluppu allir lítt lemstraðir frá óhappinu. Tekið skal fram að ekki leikur grunur á ölvunarakstri í því tilviki. ÖLVUNAR- OG FÍKNIEFNAAKSTUR UM HELGINA Fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina og þrír fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Einn þessara ökumanna, karl á þrítugsaldri, lenti í umferðaróhappi í miðborginni og fór af vettvangi án þess að útkljá málið. Lögreglan náði í skottið á kauða örskömmu síðar en þá var hann sakleysið uppmálað. Af bílnum hans að dæma var hinsvegar ljóst að maðurinn hafði ekki komist klakklaust í gegnum umferðina. Allar skýringar hins ölvaða ökumanns þóttu lítt trúverðugar og var hann handtekinn og færður á lögreglustöð.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira