Umboðsmaður Alþingis úrskurðar svæfingalækni í vil 16. febrúar 2009 10:47 TR hugsanlega skaðabótaskylt vegna ummæla fyrrum forstjóra þess.
Umboðsmaður Alþingis hefur úrskurðað að fyrrum forstöðumaður Tryggingastofnunnar, Karl Steinar Guðnason, hafi brotið gegn svæfingalækni með ummælum sínum varðandi ásakanir á hin fyrrnefnda um að hafa stolið tugum milljóna króna af stofnuninni. Svæfingalæknirinn, sem var sýknaður í héraði vegna málsins, vísaði ummælum Karls Steinars, auk fleiri atriða sem viðkoma samskipti stofnunarinnar við fjölmiðla, til umboðsmanns Alþingis. Hann kemst að þeirri niðurstöðu að stofnunin sé hugsanlega skaðabótaskyld vegna málsins. Í kvörtun sem svæfingalæknirinn sendi til umboðsmanns Alþingis á síðasta ári segir að hann sé ósáttur við athafnir og framgöngu Tryggingastofnunnar ríkisins gagnvart sér. Hann hafði þá verið kærður af stofnunni fyrir tug milljóna þjófnað sem hann átti að hafa framið yfir margra ára skeið. Málið rataði í fjölmiðla en svæfingalæknirinn taldi Tryggingastofnun tjá sig fjálglega við fjölmiðla, meðal annars vildi hann meina að yfirlitsblað sem fjölmiðlar fengu í hendur, hefði brotið gegn þagnarskyldu stofnunarinnar. Mál svæfingalæknisins rataði fyrr dómstóla þar sem hann var sýknaður af ásökunum stofnunarinnar. Við það tækifæri lét Karl Steinar hafa eftir sér: „Einhvern veginn finnst mér eins og hálf þjóðin hlæi nú að þessum dómi. En dómstólar hafa sagt sitt og við höfum áfrýjað og trúum ekki öðru en að við vinnum það í Hæstarétti." Síðar sagði forstjórinn eftirfarandi í framhaldi af því að fréttamaður hafði haft eftir honum í endursögn að með dóminum þætti forstjóranum hafa skapast einkennileg staða: „Ja, hvernig er það á vinnustað ef einstaklingur stelur tug eða tugum milljóna? Á að dæma viðkomandi til þess að vera áfram í starfi bara? Þó að vinnuveitandi vilji láta hann fara?" Umboðsmaður Alþingis telur síðustu ummæli Karls Steinars ekki samræmast reglum og að auki baki þau stofnuninni hugsanlega skaðabótaskyldu. Umboðsmaður telur sig þó ekki geta úrskurðað um að stofnunin hafi almennt gerst brotleg vegna samskipta sinna við fjölmiðla varðandi þetta mál.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Brotlenti í djúpu gili Innlent Fleiri fréttir Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Sjá meira