Ólafur: Nú henda þeir mér út hjá Kúagerði og ég hleyp heim í Kópavog Smári Jökull Jónsson skrifar 9. ágúst 2009 21:42 Ólafur Kristjánsson þjálfari Breiðabliks
Ólafur Kristjánsson þjálfari Breiðabliks var mjög ánægður með stigin þrjú sem lærisveinar hans tóku með sér frá Keflavík í kvöld. Blikar eru því komnir í ágæta fjarlægð frá fallsætunum eftir tvo sigurleiki í röð. "Ég er mjög sáttur við stigin, sáttur með að við skyldum skora fleiri en eitt mark og mér fannst leikurinn vel spilaður taktískt hjá okkur. Við vorum svolítið staðir í fyrri hálfleik en í þeim síðari var miklu meiri hreyfanleiki og við sköpuðum okkur fleiri færi. Þannig að ég er mjög ánægður" sagði Ólafur Kristjánsson þjálfari Breiðabliks í samtali við Vísi. "Öll vörnin var geysilega öflug. Miðverðirnir mjög öruggir, Elfar frábær og Guðmann kemur inn og er frábær líka. Bakverðirnir Árni og Kristinn voru mjög traustir, Keflvíkingar komust aðeins á bakvið okkur upp í hægra hornið í fyrri hálfleik en ekkert sem olli okkur vandræðum," bætti Ólafur við. Athygli vakti að Kári Ársælsson fyrirliði Blika var á bekknum í kvöld en miðverðirnir sem spiluðu í hans stað áttu frábæran leik. "Kári þarf eins og aðrir á hvíld að halda. Hann er búinn að spila alla leikina fyrir okkur, fyrir utan bikarleikinn gegn Hvöt, og mér fannst hann vera orðinn pínulítið þreyttur. Þetta var einfaldlega smá tilfæring og með Guðmann, Elfar og Kára þá erum við í góðum málum," sagði Ólafur. Þann 9.ágúst 2007, nákvæmlega fyrir tveimur árum, þá spiluðu þessi sömu lið á þessum sama velli og það sem meira er þá voru úrslitin þau nákvæmlega sömu, 3-0 sigur Blika. "Þetta er skemmtilegt. Ég fletti þessu upp í bók sem ég skrifa alltaf í til að undirbúa mig fyrir leikina, sagði strákunum þetta og það er skemmtilegt að þetta beri upp á sama dag. Á næsta ári er 9.ágúst ekki á sunnudegi og því ólíklegt að við spilum hérna að ári, þar sem við spilum flesta okkar leiki á sunnudögum. En ég er til í að koma hér aftur" sagði Ólafur í léttum tón. Mikil öskur og læti bárust frá klefa Blika þegar Ólafur gekk þar inn eftir leikinn og þegar að var gáð kom í ljós að hann hafði lagt undir 20 kílómetra hlaup í bæinn ef sigur ynnist. "Eftir svona sigur er gaman að hlaupa 20 kílómetra. Nú henda þeir mér út hjá Kúagerði og ég hleyp heim í Kópavoginn," bætti Ólafur við að lokum og rauk inn í klefa að undirbúa hlaupið heim.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Sjá meira