Bretar sagðir skálda fréttir 10. nóvember 2009 03:15 Hann segir ekki víst að misræmið sé óeðlilegt þótt upphæð skuldabréfsins sé há. „
Þótt upphæð skuldabréfsins sé vissulega há þá er ekki víst að misræmið sé óeðlilegt. Krafan getur legið undir öðrum liðum í bókhaldi bankans. Við höfum því fengið endurskoðendafyrirtækið Deloitte til að rannsaka málið," segir Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis. Á fundi kröfuhafa í síðustu viku kom upp að skuldabréfakrafa upp á um 140 milljarða króna, sem skilað var í búið, hefði ekki verið bókfærð. Glitnir gaf skuldabréfaflokkinn út á fyrri hluta síðasta árs. Hvorki er vitað hvað varð um skuldabréfaflokkinn né hver eigi hann í dag. Skuldir Glitnis nema 2.500 milljörðum króna og jafngildir krafan því að fimm prósent bætist við núverandi upphæð. Breska dagblaðið Telegraph sagði í gær kröfuna hafa komið frá Royal Bank of Scotland og þefi rannsóknarfyrirtækið Kroll uppi slóð skuldabréfanna. Árni segir þetta alrangt og jaðra við skáldskap. Krafan hafi komið inn á borð skilanefndar frá erlendum aðila sem haldi utan um rafræna skráningu skuldabréfa. Krafan hafi ekki passað við skuldalista Glitnis og því ákveðið að kanna málið. Nokkrar ástæður kunni að vera fyrir misræminu. Þar sem skuldabréfaflokkurinn hafi ekki selst kunni upphæðin að liggja undir öðrum lið í bókhaldi Glitnis. Málið er í skoðun og niðurstöðu að vænta fyrir vikulokin, að sögn Árna. - jab
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Innlent Fleiri fréttir Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Sjá meira