Fullyrða að ný gjöld aftri endurreisn 30. september 2009 03:30 Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segir Samtök aðila í atvinnurekstri vara við auknum álögum á atvinnulífið sem veikja muni fyrirtækin. Fréttablaðið/Vilhelm „
Samtök aðila í atvinnurekstri vara við þeirri skattastefnu stjórnvalda að leggja nýjar tegundir gjalda á atvinnureksturinn og hvetja til þess að megináherslan verði lögð á uppbyggingu og sköpun starfa,“ segir í ályktun Viðskiptaráðs Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, segir atvinnurekendur vísa til þess að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra boðaði fyrir nokkrum dögum auknar álögur á atvinnulífið. Nánar sjáist þó hvað um sé að ræða þegar fjárlagarumvarpið líti dagsins ljós. „Það er erfitt að sjá hvernig atvinnulífið getur staðið undir frekari búsifjum. Það er skammgóður vermir í átt að markmiðum um endurreisn og öflugt velferðarkerfi vegna þess að á endanum stendur atvinnulífið undir velferðarkerfinu,“ segir Finnur. Í ályktun SA og VÍ segir að stórauknar skattaálögur á atvinnulíf vinni gegn endurreisn hagkerfisins, hærra atvinnustigi og uppbyggingu sterks og sjálfbærs velferðarkerfis. Nýir skattar á borð við orku-, umhverfis- og auðlindaskatta leggist á kostnað fyrirtækja en verði ótengdir afkomu. „Slík skattheimta dregur úr samkeppnishæfni fyrirtækjanna gagnvart erlendum keppinautum og möguleikum þeirra til þess að hafa starfsmenn í vinnu og greiða laun. Verði þessum áformum hrint í framkvæmd er veruleg hætta á því að þeir fjárfestingarkostir sem erlend fyrirtæki hafa haft til skoðunar hér á landi verði endurmetnir og hugsanlega slegnir af,“ segir í ályktuninni og þar er einnig varað við hækkun fjármagnstekjuskatts: „Trúverðugleiki landsins er nú þegar laskaður og fátt sem dregur erlenda fjárfesta hingað til lands. Aðgerðir sem rýra rekstrar- og skattaumhverfi fyrirtækja frekar munu því verða enn eitt skref í átt frá settu marki um efnahagslega endurreisn. Sjaldan hefur þörfin fyrir erlenda fjárfestingu verið ríkari og á sama tíma vinna stjórnvöld markvisst gegn slíkum fjárfestingum.“ Finnur segir að ef fjárfestingargeta atvinnulífsins verði skert minnki möguleikar þess til að halda uppi atvinnustiginu. „Þessar kerfisbreytingar eru hryssingslegar kveðjur til þeirra erlendu aðila sem hafa sýnt einhvern áhuga á fjárfestingum eða fjármögnun hér. Maður myndi halda að núna væri einmitt sá tími sem maður þyrfti á gagnstæðu viðhorfi að halda,“ segir framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.
Mest lesið Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent Hleypti líklega óvart úr Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Fleiri fréttir Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Sjá meira