Tækjum var fjölgað á yfirfullri gjörgæslu 30. október 2009 04:00 Auk svínaflensunnar hefur verið mikið um önnur alvarleg veikindi og slys sem hafa krafist innlagnar á gjörgæsludeild síðustu daga.fréttablaðið/gva
Gjörgæsludeildir Landspítala í Fossvogi og á Hringbraut fylltust aðfaranótt fimmtudags, þegar þar lágu níu sjúklingar með svínaflensu, auk hinna sem þar voru af öðrum orsökum. „Sjúklingar sem hefðu þurft að fara á gjörgæslu hefðu ekki komist inn,“ segir Már Kristjánsson, yfirmaður smitsjúkdómadeildar spítalans. Spurður um viðbrögð ef fleiri hefðu þurft að leggjast inn á gjörgæslu segir Már að í þeirri stöðu hefði þurft að kalla til starfsfólk af öðrum deildum spítalans eða starfsfólk sem var heima í hvíld. „Við höfum þurft að bæta við töluverðum tækjabúnaði vegna flensunnar,“ segir Björn Zoëga, forstjóri spítalans. „Um er að ræða tvö gervilungu, svo og sprautudælur sem dæla lyfjum í gjörgæslusjúklinga. Einnig höfum við skoðað skilvindu fyrir fólk sem lendir í nýrnabilun sem fylgir oft svona sjúkdómum.“ Á Landspítala lágu 35 um hádegi í gær, þar af átta á gjörgæslu. Það var heldur færra en á miðvikudag, því þá voru 39 inflúensusjúklingar inniliggjandi, þar af níu á gjörgæsludeild. Tólf voru lagðir inn á einum sólarhring en tveir voru útskrifaðir á sama tíma. Meira reyndi á miðvikudag á starfsemi Landspítala vegna inflúensunnar en nokkru sinni frá því faraldurinn hófst. Vegna þessarar stöðu var viðbúnaður á Landspítala í gær færður á svokallað virkjunarstig, samkvæmt viðbragðsáætlun spítalans. Þetta er næstefsta stig af fjórum sem skilgreind eru í áætluninni. Efst er neyðarstig. Á virkjunarstigi viðbúnaðar gæti þurft að draga úr innlögnum sjúklinga og fresta þeim aðgerðum sem unnt er að fresta á Landspítalanum. Alls hafa 6.609 manns greinst með inflúensueinkenni hérlendis. Frá 23. september hafa yfir hundrað manns verið lagðir inn á sjúkrahús hér vegna inflúensu, þar af tæplega níutíu manns á Landspítala. Af þeim eru þrír af hverjum fjórum með undirliggjandi sjúkdóma. Frá októberbyrjun hafa fjórtán sjúklingar verið lagðir inn á gjörgæsludeildir með staðfesta inflúensu eða grun um hana. Síðdegis í gær voru alls níu á gjörgæsludeildum, þar af einn á Akureyri og átta á Landspítala, eins og áður sagði.jss@frettabladid.is
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Sjá meira