Segir pólitík á bak við frávísun 30. október 2009 05:30 Finnbogi Vikar Guðmundsson var vísað út af aðalfundi LÍÚ í gær.
Finnbogi Vikar Guðmundsson, laganemi við Háskólann á Bifröst, fullyrðir að honum hafi verið vísað út af aðalfundi LÍÚ í gær vegna gagnrýninna skrifa um fiskveiðistjórnunarkerfið í vor. Finnbogi segist hafa sótt fundinn til að afla sér upplýsinga um sjávarútveg. Hann situr í starfshópi á vegum sjávarútvegsráðherra sem ætlað er að endurskoða fyrirkomulag fiskveiðistjórnunar, og var tilnefndur af Borgarahreyfingunni. „Ég tengi þetta atvik beint við skrif okkar Þórðar Más Jónssonar um kerfisbundna misnotkun á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Ég vissi ekki að þetta risti svona djúpt," segir Finnbogi. Hann segir að sér hafi verið vísað á dyr eftir að upplýsingafulltrúi LÍÚ hafði „ráðfært sig við yfirboðara sína". Sigurður Sveinn Sverrisson, upplýsinga- og kynningarmálafulltrúi LÍÚ, segir ekki ástæðu til að gera frávísun Finnboga tortryggilega enda sé hún á engan hátt persónuleg. Finnbogi hafi leitað til hans til að fá upplýsingar um hvort honum væri heimilt að sitja fundinn þótt óboðinn væri. Hann hafi síðan fengið staðfest að svo væri ekki. „Aðalfund LÍÚ sitja bara boðsgestir, fulltrúar fjölmiðla og þeir sem eru kjörgengir aðalfundarfulltrúar útvegsmanna. Þannig hefur það ávallt verið." - shá
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Sjá meira