KR hafnaði tilboði Vals í Guðmund Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. júlí 2009 12:15 Guðmundur Benediktsson í leik með Val á síðasta tímabili. Mynd/Anton
KR hefur hafnað tilboði Vals í Guðmund Benediktsson sem síðarnefnda félagið vill fá til að þjálfa liðið sitt í Pepsi-deild karla. Willum Þór Þórsson og knattspyrnudeild Vals komust að samkomulagi í fyrradag um að slíta „farsælu samstarfi" þeirra eins og það var orðað í tilkynningu frá Val. „Þeir höfðu samband í fyrradag og óskuðu eftir leyfi til að fá að tala við hann," sagði Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, í samtali við Vísi. „En við erum ekki á þeim buxunum að losna við hann og erum ekki að semja við þá um eitt eða neitt. Við höfðum fyrir því að fá hann í KR og viljum hafa hann áfram í KR." Valur hafði svo aftur samband í gærkvöldi og lögðu fram tilboð. Því var umsvifalaust hafnað. „Það sem þeir lögðu fram var bara grín. Ég lít sem svo á að það sé ekki um neitt að ræða. Gummi verður áfram hjá okkur og þeir vinna áfram í sínum málum." Hann útilokar þó ekki að KR muni hafna öðrum tilboðum Vals í Guðmund. „Við munum skoða alla hluti og ef leikmaðurinn hefur áhuga á að fara verðum við að skoða það. Það sem hingað til hefur komið fram erum við ekki tilbúnir að sætta okkur við." „En við erum ekki heldur að bíða eftir nýju útspili frá Val." Ekki hefur náðst í Guðmund sjálfan þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Kristinn segist hafa rætt við Guðmund um hvað hann vilji gera. „Ég leyfi honum sjálfum að svara þeirri spurningu." Eins og áður hefur komið fram hefur Vísir heimildir fyrir því að Valsmenn hafi rætt við Guðmund á undanförnum dögum. Það hefur ekki breyst.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hausverkur fyrir Iraola Enski boltinn Kallaður fyrir þingnefnd vegna tengslanna við Trump Fótbolti „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Bjóða hverjum sem vinnur Littler 84 milljónir Sport Mbappé sár eftir HM Fótbolti Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur Íslenski boltinn Rosenborgarar Freys óstöðvandi Fótbolti „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Íslenski boltinn Úrslitaleikurinn á HM reyndist síðasti leikurinn á ferlinum Fótbolti Finnst illa að Argentínu vegið: „Enginn fótur fyrir þessu hatri“ Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Bikarúrslitaliðin í eldlínunni „Góðir tímar framundan“ „Hefði nú verið betra að vera með tvo sigra“ „Mjög ánægður með margt í leiknum en óánægður með jafntefli“ Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Fyrirliði Njarðvíkur til Vals Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-0 | Ágúst Orri hetjan Aðstoðarþjálfari Jökuls í Vesturbæinn „Við eigum harma að hefna“ Sjáðu mörkin þegar ÍA kjöldró Stjörnuna Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Jóhannes Karl: Strákarnir eiga skilið frí yfir helgina Uppgjörið: ÍA-Stjarnan 5-1 | Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Uppgjörið: FH-Fram 0-0 | Mörg mörk síðast en ekkert í kvöld Kláraði Harvard og samdi við Blika Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Sjá meira