Dómsmálaráðherra hefur skipað sérstakt teymi um mansal Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. nóvember 2009 11:12 Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra hefur skipað teymið. Mynd/ GVA.
Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur skipað sérfræði- og samhæfingarteymi um mansal í samræmi við aðgerðaáætlun gegn mansali, sem samþykkt var á fundi ríkisstjórnar þann 17. mars síðastliðinn. Í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu segir að hlutverk teymisins sé meðal annars að tryggja yfirsýn og þekkingu á mansalsmálum á Íslandi, fylgja eftir vísbendingum um mansal, bera kennsl á möguleg fórnarlömb þess og tryggja þeim vernd og aðstoð. Jafnframt sé teyminu ætlað að sinna skráningu ætlaðra mansalsmála, sinna fræðslu um mansalsmál, hafa eftirlit með framkvæmd aðgerðaáætlunar og vera stjórnvöldum til ráðgjafar í mansalsmálum. Skipunartími teymisins er til 31. desember 2012. Teymið er skipað Hildi Jónsdóttur, sem er formaður, Guðlaugu Jónasdóttur, frá dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu, Sveini Magnússyni, frá heilbrigðisráðuneytinu, Ingibjörgu Broddadóttur, frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu, Berglindi Eyjólfsdóttur, frá Ríkislögreglustjóra, Guðrúnu Jónsdóttur, frá Stígamótum, Sigþrúði Guðmundsdóttur, frá Samtökum um kvennaathvarf, Ágústi Flygenring, frá utanríkisráðuneytinu og Hreiðari Eiríkssyni, frá Útlendingastofnun. Þá hefur verið starfandi svokallað neyðarteymi vegna meints mansalsmáls að undanförnu. Um neyðarteymið er fjallað í aðgerðaáætlun gegn mansali en í teymið eru kallaðir til þeir aðilar sem sérstaka aðkomu hafa að málum þar sem grunur er um mansal, miðað við aðstæður hverju sinni.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Fleiri fréttir Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Sjá meira