Umboðsmaður Pogba styður málstað United Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. september 2009 13:45 Paul Pogba, til hægri, í leik með franska U-16 landsliðinu. Nordic Photos / Bongarts
Umboðsmaður franska táningsins Paul Pogba segir að peningar hafi ekki verið aðalástæðan fyrir því að hann ákvað að fara til Manchester United. Pogba er sautján ára gamall og yfirgaf æskufélag sitt, Le Havre, í Frakklandi, og samdi við United. Le Havre hefur nú hótað að kæra United fyrir að hafa lokkað táninginn til sín, líkt og Lens gerði í tilfelli Chelsea og Gael Kakuta. FIFA beitti Chelsea þungri refsingu fyrir að hafa hvatt Kakuta til að rifta samningi sínum við Lens og ganga til liðs við sig. Umboðsmaður Pogba segir að Manchester United hafi ekki gert neitt ólöglegt. „Þetta er auðvitað góður samningur en það eru ekki bara peningar sem valda því að ungur leikmaður og foreldrar hans ákveða að flytjast úr landi," sagði Gael Mahe, umboðsmaður Pogba, í samtali við enska fjölmiðla. Móðir Pogba sagði enn fremur að Le Havre hefði brugðist syni sínum og ekki boðið honum nýjan samning, eins og öðrum ungum leikmönnum. „Le Havre var sama um son minn. Þegar hann missti úr skóla vegna þess að hann var að keppa var félaginu alveg sama," sagði móðirin. Hún þvertók einnig fyrir það að foreldarnir hafi fengið hús að gjöf frá félaginu í skiptum fyrir að Pogba samdi við United. „Hótelfréttin fékk okkur til að hlægja. Við erum á hóteli og af hverju ættum við að vera hér ef við ættum hús. Ég get fullvissað þig um að félagið gaf okkur ekki neitt," sagði hún í samtali við France Football. Umboðsmaðurinn sagði að Untited hefði sent móðurinni blómvönd, föðurnum bók um sögu Manchester United og stráknum treyju með nafni hans.
Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Sjá meira