Innlent

Bjarni gagnrýnir fyrirhugaða fyrningu aflaheimilda

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bjarni Benediktsson gagnrýndi fyrirhugaða fyrningu aflaheimilda. Mynd/ GVA.
Bjarni Benediktsson gagnrýndi fyrirhugaða fyrningu aflaheimilda. Mynd/ GVA.

Hugmyndir ríkisstjórnarinnar um fyrningu aflaheimilda eru hugmyndir um þjóðnýtingu og setur sjávarútveginn í uppnám, sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra.

Hann sagði að þegar væri orðinn skaði af þessum hugmyndum því að áætlanir útgerðarfyrirtækja væru settar úr skorðum. Bjarni sagði að menn þyrftu að spyrja sig hvort fyrning aflaheimilda myndi skila einhverju.

Bjarni sagði að mikil fyrirheit hefðu verið um aðgerðir fyrir heimilin í landinu frá því að ríkisstjórn Samfylkingarinnar og VG tók til starfa en lítið orðið um efndir.

Þá minnti Bjarni á ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins í evrópumálum. Þar kæmi fram að engir sérsamningar væru í boði sem kæmu til móts við kröfur Íslendinga í mikilvægum málum, einkum sjávarútvegsmálum og landbúnaðarmálum. Það væri blekking að halda öðru fram.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×