Innlent

ESB engin töfralausn

Steingrímur segir mikilvægt að stjórnmálalegri óvissu hefði verið eytt. Mynd/ Vilhelm.
Steingrímur segir mikilvægt að stjórnmálalegri óvissu hefði verið eytt. Mynd/ Vilhelm.
„Stjórnarmyndinun var ekki án fórna og málamiðlana," sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra. Benti hann til dæmis þá niðurstöðu að setja ESB málin í farveg á Alþingi. Hann benti þó á að um leið væri það lýðræðisleg lausn á málinu að Alþingi kysi um það. Steingrímur lagði áherslu á að menn skyldu ekki trúa því að aðildarumsókn um ESB yrði einföld og sársaukalaus leið út úr efnahagsvanda Íslendinga. Verkefnið yrði að leysa heimafyrir.

Þá sagði Steingrímur að þær aðstæður sem nú væru fyrir hendi í stjórnmálum væru betri til að einhenda sér í þau erfiðu verkefni sem blasa við, en þær sem voru í vetur. Þá hefði verið stjórnmálaleg óvissa sem nú væri búið að eyða. „Það síðasta sem Íslendingar hefðu þurft er stjórnarkreppa," sagði Steingrímur. Því hefði verið mikilvægt að stjórnarmyndun gæti gengið vel.

Þá sagði Steingrímur að von væri á sendinefnd AGS í þessari viku til að ræða við ríkisstjórnina. Endurskoðun efnahagsáætlunar sem byggð var á samstarfi við AGS yrði endurskoðuð í framhaldi af því. Í byrjun júní myndu síðan fara fram næstu samningafundir við Breta um Icesave.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×