Innlent

Vill afþakka aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Þór Saari segir ríkisstjórnina ráðalausa.
Þór Saari segir ríkisstjórnina ráðalausa.
Ríkisstjórnin er ráðalaus og engin stefna var í stefnuræðu forsætisráðherra, sagði Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, við umræður um stefnuræðu forsætisráðherra í kvöld.

Þór sagði mikilvægt að ríkisstjórnin myndi vinna að aðgerðum til þess að höfuðstóll íbúðalána gæti lækkað um 20%. Þá væri mikilvægt að afnema verðtryggingu í kjölfarið. „Algjör pempíuháttur í kringum afnám hennar er löngu orðinn óþarfur," sagði Þór.

Þá sagði Þór mikilvægt að leita aftur til nágrannaþjóða Íslands um lán og afþakka svo aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Vaxtagreiðslur Íslendinga væru allt of miklar. Yrði haldið áfram á þeirri braut sem nú væri farin myndi menntakerfið og velferðakerfið leggjast á hliðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×