Dyr opnast að olíuiðnaði 18. maí 2009 19:04
Fyrstu olíuborpallarnir gætu verið komnir inn í íslenska lögsögu eftir þrjú til fjögur ár, að mati umsækjenda um Drekasvæðið en þeir reyndust báðir vera norsk olíuleitarfélög. Iðnaðarráðherra segir að í dag hafi dyr opnast að nýjum iðnaði fyrir Íslendinga.Áður var Sagex Petrolium búið að staðfesta að það hefði sótt um en menn biðu spenntir í þéttsetnum sal Orkustofnunar að heyra hver hinn umsækjandinn væri, Aker Exploration. Það er í eigu eins ríkasta manns Noregs, Kjell Inge Rökke, og er hluti af Aker samsteypunni sem er með höfuðstöðvar á Fornebu í Osló. Aker er stærsta iðnaðarsamsteypa Noregs og smíðar meðal annars olíuborpalla eins og þennan sem Stöð 2 sýndi nýlega en hann er sérstaklega gerður til að olíuleitar við aðstæður eins og á Drekasvæðinu. Sagex Petrolium er með höfuðstöðvar við hlið ráðhússins í Osló en forstjóri þess, Terje Hagevang, vann sína doktorsritgerð um Drekasvæðið. Félagið er að fimmtungi í eigu Íslendinga, en í þeim hópi er eigandi BYKO stærstur. Iðnaðarráðherra sagði þetta stóran dag.Hér sjáum við þá reiti sem sótt var um og líklegastir þykja til að geyma olíu en hver umsækjandi mátti sækja um tvo reiti. Tveir reitanna eru innan svæðis sem Norðmenn eiga 25 prósent nýtingarrétt á, og annar þeirra alveg við lögsögumörk ríkjanna. Tveir syðstu reitirnir eru þeir sem Íslendinga ráðstafa að öllu leyti.Hjá Orkustofnun fagna menn því sérstaklega að umsóknir fyrirtækjanna skarast ekki. Bæði hefði þá þurft að synja öðru fyrirtækinu um viðkomandi svæði en einnig fáist með þessu víðtækari þekking á svæðinu í heild. Sérleyfin verða gefin út fyrir október í haust og í framhaldinu af því fara fyrirtækin í nákvæmari rannsóknir áður en þau senda fyrstu borpalla á svæðið.
Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Innlent Fleiri fréttir Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Sjá meira