Segir hund hafa étið læri af lifandi lambi 12. september 2009 06:00 Lamb sem hundur drap Ömurleg aðkoma var að lambinu sem hundur drap ofan við Gljúfrastein í Mosfellsdal. „
Lambið hefur áreiðanlega verið lifandi þar til búið var að éta helminginn af lærinu,“ segir Hreinn Ólafsson, fjárbóndi í Helgadal ofan við Mosfellsdal. Tvö lömb fundust dauð á þriðjudag við ána Köldukvísl, um fimm hundruð metra fyrir ofan Gljúfrastein. Talið er öruggt að þau hafi verið drepin af hundi. Að sögn Hreins er aðeins einn og hálfur mánuður frá því sex ær fundust drepnar af hundum í Seljadal ofan við Helgadal. „Það eru þrír litlir fjárbændur hérna í dalnum og við erum búnir að missa sextíu til sjötíu fjár á sex eða sjö árum í hunda. Þetta er náttúrlega heimsmet,“ segir Hreinn. Á bæjarskrifstofunni í Mosfellsbæ fékkst staðfest að sá fjöldi kinda sem Hreinn nefnir hefði verið drepinn af hundum í Mosfellsdal á undanförnum árum. Enginn vafi leiki á því að um hunda hafi verið að ræða. Eins og áður kemur fram telur Hreinn lömbin tvo ofan við Gljúfrastein hafa verið lifandi meðan hundurinn át sig inn í þau. „Það er ekki skemmtilegur dauðdagi að láta hund drepa sig,“ bendir fjárbóndinn á. Hreinn kveðst hafa grun um hvaða hundur hafi verið að verki nú síðast. „En það er ekkert staðfest,“ ítrekar hann. Að sögn Hreins hefur megnið af áðurnefndum sextíu til sjötíu tilvikum þar sem hundar hafa drepið fé í sveitinni verið upplýst. Eigendur hundanna eða tryggingar þeirra hafi þá greitt bætur fyrir kindurnar og hundarnir verið felldir. Síðast hafi tveir hundar verið drepnir fyrir þremur árum. „Þeir hafa verið skotnir hérna á túnunum á færi,“ upplýsir hann. Hreinn segir mikinn fjölda hunda vera í sveitinni. „Ég gæti trúað að um þriðjungur þeirra sé látinn ganga laus og það er gallinn. Fólk verður að passa þetta betur. Lögreglan hefur engan tíma enda er hún á harðahlaupum á eftir sófasettum um allar jarðir,“ svarar Hreinn spurður hvað sé til ráða. Lömb ánna sex sem drepnar voru í Seljadal fyrr í sumar eru enn ófundin að sögn Hreins. „Við finnum ekki lömbin og þangað til annað kemur í ljós höldum við að þeim hafi verið stolið,“ segir fjárbóndinn í Helgadal.gar@frettabladid.is
Mest lesið Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Fleiri fréttir Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Sjá meira