Vilja að ríkið nýti nýja tekjumöguleika 12. september 2009 08:15 alþingi Stjórnarandstaðan vill auka umsvif atvinnulífsins, skattleggja auðlindanotkun, lækka stýrivexti og grípa til aðgerða til að lækka skuldir heimilanna frekar en að hækka skatta eins og ríkisstjórnin telur nauðsynlegt.Fréttablaðið/stefán
Talsmenn stjórnarandstöðunnar vilja að ríkissjóður leiti nýrra tekna frekar en að hækka skatta um 28-30 milljarða króna á næsta ári eins og stefnt er að. Auk hærri skatta hyggur ríkisstjórnin á 33-35 milljarða niðurskurð. Neytendasamtökin og fleiri hafa hvatt ríkið til að hækka beina skatta eins og tekjuskatt frekar en óbeina skatta og vörugjöld en þau síðarnefndu hafa áhrif á vísitölu og höfuðstól og greiðslubyrði lána. „Ég held að við þær aðstæður sem eru nú verði að blanda þessu talsvert saman,“ segir Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG. Hann segist vilja kanna leiðir til að takmarka áhrif skattahækkana á vísitölugrunn lána. Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, segist ósammála hugmyndafræði ríkisstjórnarinnar; ríkið eigi mikla ónýtta tekjumöguleika. Hann vill endurskoða samninga við álfyrirtæki og tryggja ríkinu tekjur af orkusölu. Eins vill hann afnema kvótakerfið. „Það er löngu kominn tími til að þjóðin njóti arðs af þeim auðlindum sem hafa ýmist verið gefnar útgerðinni eða leigðar erlendum stórfyrirtækjum á spottprís,“ segir Þór, en verði farið í skattahækkanir séu beinar skattahækkanir æskilegri en óbeinar vegna áhrifa á skuldir heimilanna. Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, og Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknar, leggja áherslu á að ná niður stýrivöxtum Seðlabankans og auka skatttekjur með auknum umsvifum í atvinnulífinu. „Það verður að ná niður vöxtum Seðlabankans og fara í að nýta orkuauðlindir og aðrar auðlindir til að efla hagkerfið,“ segir Illugi. Birkir Jón útilokar ekki skattahækkanir í framtíðinni, „en þá verða heimilin að geta staðið undir því,“ segir hann og minnir á þá áherslu sem framsóknarmenn hafi lagt á að skuldir heimilanna verði lækkaðar. Það þoli enga bið. Illugi leggur einnig áherslu á að ríkið nýti sér hugmyndir Sjálfstæðisflokksins og afli um það bil þrjátíu milljarða tekna á næsta ári með því að skattleggja inngreiðslur í lífeyrissjóði en hætti að skattleggja útgreiðslur eins og nú er gert. Það hafi engin áhrif á ráðstöfunartekjur launþega, þótt það dragi vissulega úr þjóðhagslegum sparnaði og dragi úr völdum og áhrifum lífeyrissjóða. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Sjá meira